Menning

Sýning bræðra

Horf Ljósmynd eftir Braga J. Ingibergsson.
Horf Ljósmynd eftir Braga J. Ingibergsson.

Bræðurnir Þorsteinn H. Ingibergsson og Bragi J. Ingibergsson opnuðu ljósmyndasýningu í Frímúrarahúsinu að Ljósatröð 2 í Hafnarfirði um miðjan síðasta mánuð. Nú um helgina er komið að sýningarlokum hjá þeim, en síðasti sýningardagur er á morgun og verður þá opið á milli kl. 14 og 18. Þeir bræður hafa lagt stund á ljósmyndun frá unga aldri og hafa myndir þeirra birst opinberlega í ýmsum miðlum.

Myndirnar á sýningunni eru prentaðar beint á álplötur, en sú vinnsluaðferð gefur eilítið grófa litaáferð sem þykir jafnvel minna nokkuð á málverk.- vþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×