Gengi krónunnar virðist sem í frjálsu falli. Hún hefur nú fallið um 4,4 prósent innan dagsins og hefur ekki verið veikari síðan um aldamót. Evran hefur aldrei verið dýrari.
Vísitalan stendur í 170 stigum og hefur veikst um rúm 25 prósent frá áramótum.
Bandaríkjadalur kostar nú 85,2 krónur, eitt breskt pund 166,7 krónur og dönsk króna 17,6 krónur.