Eðalborgari frá Turninum 10. desember 2008 11:02
Hráefni 200 gr. Nautalund 1 stk. Eggjarauða Salt og pipar 1 msk. Smjör 1 msk. Olivu olía 50 gr. Tómat og papriku salsa t.d. frá Sacla 20 gr. Parmisan ciabatta brauð 50 gr. majónes Ögn af wasabí 1 stk. Sætar kartöflur 4-5 dl. af jurtaolíu 2-3 lauf af rómain salat ½ tómatur í sneiðum ¼ paprika í sneiðum 3 hringir af rauðlauk 3 stk. Beikon sneiðar steiktar AðferðNautalundin er söxuð mjög smátt og sett í skál. Blandið salt, pipar, eggjarauðu og tómat/papriku salsa við kjötið og hnoðið vel saman með höndunum, mótið hamborgarann og setjið hann til hliðar. Kartöflurnar eru skornar í báta og soðnar í vatni með salti, kartöflurnar þurfa ekki að vera alveg eldaðar þannig þetta er c.a. 5-8 mínútu suða, takið kartöflurnar síðan upp úr vatninu og þerrið þær vel. Til þess að undirbúa sósuna tökum við majónesið og setjum í skál og smökkum til með örlitlu wasabí dufti. Ciabatta brauðið er skorið í tvennt og steikt á pönnu með smjöri og olivu olíu síðan er mjög mikilvægt að smyrja brauðið strax með sósunni svo hún fari vel inn í brauðið. Steikið síðan hamborgarann á sömu pönnu svo við höldum því góða bragði sem við erum komin með á pönnuna, steikið hamborgarann c.a.2 mín á hvorri hlið. Á meðan hamborgarinn er á pönnunni steikjum við kartöflurnar í djúpsteikingar olíu þangað til að kartöflurnar okkar eru orðnar gylltar og girnilega stökkar, munið að salta þær vel eftir að þær koma upp úr olíunni með góðu salti. Þá er bara eftir að raða hamborgaranum saman með öllu meðlætinu og njóta vel.
Hamborgarar Jói Fel Nautakjöt Uppskriftir Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun Crawford minnist sonarins Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið