Formúla 1

Formúlu 1 lið stofna eigin mótaröð

FOTA er samtök keppnisliða í Formúlu 1.
FOTA er samtök keppnisliða í Formúlu 1.

FOTA, samtök Formúlu 1 liða sendu frá sér tilkynningu þess efnis að stofnuð verði ný mótaröð. Liðin segjast búinn að gefast upp á FIA og vilji sinna sínum málum betur 2010.

Meðlimir samtakanna, BMW, Renault, McLaren, Toyota, Brawn, Red Bull, Torro Rosso og Ferrari funduðu í Enstone í Bretlandi í gær og komust að samkomulagi um að hætta í Formúlu 1 eftir þetta ár. Frægustu ökumennirnir styðja hugmynd FOTA.

FIA og FOTA hafa deilt hart í fjömliðlum síðustu vikurnar og því hefur FOTA ákveðið að fara þessa leið, en óljóst er hvort um pólítískan þrýsting er að ræða með yfirlýsingu þessari. Lokadagur til umsókna fyrir Formúlu 1 er í dag hjá FIA.

Bernie Ecclestone lét að því liggja fyrr í vikunni að hann myndi berjast gegn stofnun nýrrar mótaraðar með kjafti og klóm, en hann á sjóvnarpsréttinn og hefur þénað umtalsverðar upphæðir á honum. Þá hefur hann með samninga við mótshaldara að gera. Það er því mikið hagsmunamál fyrir Ecclestone að ekki verði tvær mótaraðir í gangi.

Ecclestone hefur einmitt ákveðið að flytja breska kappaksturinn sem er um helgina á Silverstone á Donington Park á næsta ári vegna samstarfsörðugleika og peningamála.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×