Formúla 1

Button brattur á heimavellinum

Jenson Button verður fullur sjálfstrausts á Silverstone.
Jenson Button verður fullur sjálfstrausts á Silverstone. Mynd: Gety Images

Jenson Button verður á heimavelli þegar hann mætir keppinautum sínum í Formúlu 1 á Silverstone í Bretlandi um helgina.

"Ég vil standa mig vel fyrir framan landa mína, ekki síst þar sem þetta er síðasta mótið á Silverstone í einhvern tíma. Ég vona að það verði mikill mannfjöldi á brautinni og andrúmsloftið verður kyngimagnað", sagði Button í dag.

Button er með 26 stiga forskot í stigamóti ökumanna og því engin hætta á að hann tapi forystuhlutverkinu enn sem komið er.

"Ef allt fer á versta veg, þá verð ég með 16 stiga forskot eftir mótið... En ég vill hámarka árangur minn í hverju móti, en verð þó afslappaður. Ég finn ekkert fyrir auka pressu á mér þó ég keppi á heimavelli. Það vantaði stemmninguna í síðustu keppni, sem var í Tyrklandi."

Button fylgist grannt með gangi máli í deilum FIA og FOTA.

"Keppnisliðin og FIA verða að leysa málin og er að vinna að lausn. Ég get ekki breytt gangi mála hvað þetta varðar. Ég held að allir sem eru að keppa í ár, keppi á næsta ári", sagði Button.

Fjallað verður um mótið á Silverstone í þættinum Rásmarkið kl. 23:00 á fimmtudagskvöld.

Sjá brautarlýsingu og tölfræði










Fleiri fréttir

Sjá meira


×