Formúla 1

Upphlaup á fundi FIA og FOTA

Enn eitt fjölmiðlastríðið virðist í uppsiglingu milli FIA og FOTA.
Enn eitt fjölmiðlastríðið virðist í uppsiglingu milli FIA og FOTA. mynd: Getty Images

Forráðamenn Formúlu 1 liða gengu af fundi með samningarmönnum FIA í dag, þar sem verið var að ræða framtíðarreglur í íþróttinni. Er ljóst að grær ekki heilt á milli þessara aðila, sem þóttust þó hafa samið frið á dögunum. Málið er orðið einn allsherjar farsi og íþróttinni síst til framdráttar.

Fundurinn var á Nurburgring og FOTA menn segja að Charlie Whiting hafi skyndilega tilkynnt að liðin átta i FOTA væru ekki gjaldgeng í Formúlu 1, árið 2010. FIA var búið að tilkynna að liðin væru hluti af meistaramótinu 2010.

Fyrir tveimur vikum skrifuðu FIA, FOTA og FOM undir samstarfssamning um framtíð Formúlu 1, en nú virðist hlaupin snuðra á þráðinn. Enn eina ferðina. Virðast teikn á lofti og óljóst hvert stefnir.

Ítarlega verður fjallað um stöðu mála í þættinum Rásmarkið á Stöð 2 Sport kl. 20.00 á fimmtudagskvöld í upphitun fyrir kappaksturinn á Nurburgring um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×