Formúla 1

Pétur Jóhann leikur formúlubíl - Myndband

Þau Pétur Jóhann Sigfússon og Ilmur Kristjánsdóttir verða gestir í þættinum Við rásmarkið á Stöð 2 Sporti í kvöld.

Þar munu þau til að mynda keppa í Formúlu 1 herminum og Pétur Jóhann hermir eftir formúlubíl eins og sjá má í myndskeiðinu hér að ofan.

Þátturinn hefst klukkan 20.00 í kvöld en Kristján Einar Kristjánsson sem keppir í Formúlu 3-mótaröðinni er einnig meðal gesta í þætti kvöldsins.

Þátturinn er endursýndur á laugardag og sunnudag.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×