Krónhjörtur
þurrkaðir villisveppir
einiber
salt og pipar
Aðferð: Maukið í morteli sveppi og einiber, kryddið með salt og pipar. Veltið kjötinu uppúr kryddinu og steikið við háan hita. Bakið í ofni við 180° í sirka 12 mínútur en það fer efti því hversu þykk steikin er. Hafið steikina létt steikta eða í sirka 55° í kjarnhita.

Sveppablanda
sirka 500 gr af sveppum
flúðasveppir
kastaníu sveppir
shitake sveppir (ef vill)
1 dl Grand marnier
sirka 2 dl Rjómi
salt og pipar
Aðferð: Steikið sveppina vel , setjið vínið saman við og sjóðið niður í síróp. Setjið þá rjóma saman við og látið sjóða í þykkan lög, kryddið með salt og pipar.

Steiktar perur
pera
smjör
hrásykur
Aðferð: Skerið peruna niður í báta og steikið upp úr smjöri, setjið sykurinn saman við og látið leysast upp, brúnið létt.
Skerið kjötið niður í sneiðar, setjið sveppa blöndu á disk og kjötið þar yfir. Setjið þá perurnar yfir kjötið og berið fram.