Stjórnvöld gerðu ekkert til að hindra Icesaveklúðrið 12. apríl 2010 15:08
Rannsóknarnefnd Alþingis segir að enda þótt íslensk stjórnvöld hefðu í upphafi árs 2008 lagt að stjórnendum Landsbankans að flytja Icesave reikningana yfir í breskt dótturfélag var ekki gripið til neinna þeirra stjórntækja eða úrræða sem stjórnvöld réðu yfir til að fylgja málinu eftir."Í þessu sambandi gat komið til greina að boða að innan tiltekins tíma yrði bindiskylda á erlenda innlánsreikninga íslenskra banka hækkuð verulega. Þá gat einnig skipt máli að mæla fyrir um í hvaða mynt bindiskyldan yrði, m.a. með tilliti til þess að þarna var um að ræða skuldbindingar sem íslenskur aðili hafði stofnað til að verulegu leyti í erlendum gjaldeyri," segir í skýrslu nefndarinnar.Aðgerðir af þessu tagi hefðu getað haft áhrif á hversu fýsilegt það var, t.d. fyrir Landsbankann, að taka við innlánum í erlendum útibúum. Þvert á móti tók Seðlabanki Íslands þá ákvörðun í mars 2008 að lækka bindiskyldu á innlánsreikningum í útibúum erlendis með það fyrir augum að samræma reglur Seðlabankans reglum Seðlabanka Evrópu án þess að til þess stæði nein skylda. Ætla verður að mestu hafi ráðið um þetta að með breytingunni fengu íslensku bankarnir aðgang að auknu lausafé sem mikill skortur var þá á.Önnur úrræði stjórnvalda hefðu t.d. getað verið að gera kröfur um aukið eigið fé þeirra innlánsstofnana sem tóku við innlánum í útibúum erlendis í ljósi þeirrar auknu áhættu sem því fylgdi. Þá má heldur ekki gleyma því að íslensku bankarnir þrýstu mjög á íslensk stjórnvöld að auka gjaldeyrisforða landsins með lántökum erlendis á fyrri hluta árs 2008.Þess sér hins vegar ekki stað að fulltrúar stjórnvalda hafi bent bönkunum á að það kynni að hafa áhrif í þessu sambandi ef þeir flyttu innlán í útibúum sínum erlendis í dótturfélög þar. Með því hefði verið dregið úr veikleika sem erlendir aðilar töldu vera fyrir hendi í fjármálakerfi Íslands.Við skýrslutöku hjá rannsóknarnefndinni kom fram hjá bankastjóra Seðlabanka Íslands að það hefði fyrst verið eftir mitt ár 2008 sem bankastjórnin gerði sér grein fyrir að þeir peningar sem komu inn á Icesave reikningana væru í einhverjum mæli fluttir heim til Íslands.Rannsóknarnefndin telur rétt í þessu sambandi að benda á að á fundi sem tveir seðlabankastjóranna áttumeð bankastjóra Seðlabanka Bretlands í mars 2008 höfðu fulltrúar breska seðlabankans lýst því að þeir teldu að innlán sem safnað væri í Bretlandi væru meira og minna notuð til þess að fjármagna hraðan vöxt útlána á Íslandi.Rannsóknarnefnd Alþingis telur að ástæða hefði verið til þess að bankastjórn Seðlabankans aflaði glöggra upplýsinga um hvernig Landsbankinn nýtti þá fjármuni sem komu inn á Icesave reikninga útibúsins í London í fjárstýringu sinni og þá sérstaklega hvort þeir væru í einhverjum mæli fluttir til Íslands eða notaðir í tengslum við fjármögnun höfuðstöðva bankans á Íslandi. Það er þannig ekki að sjá að Seðlabankinn hafi brugðist við þeirri ábendingu sem fram kom á fyrrnefndum fundi með Seðlabanka Bretlands í mars 2008 og það þrátt fyrir að hún væri sett fram í tengslum við áhyggjur forsvarsmanna Seðlabanka Bretlands af stöðu íslensku bankanna og umræddum innlánum.Tryggvi Pálsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans segir í skýrslu sinni til rannsóknarnefndarinnar að..."Það að fara að nota bindiskyldu, auðvitað má ímynda sér eftir á... að ef við hefðum haft einhvern herforingja sem hefði sagt: „Ja, nú ætla ég bara að nota þau tæki, hvort sem þau eru peningapólitísk eða öðruvísi til þess að stoppa þessa starfsemi af", þá hefði bindiskyldan hugsanlega verið tæki, ef það hefði verið hægt að segja: „Ég set bara 10-15% bindiskyldu hér á, mér er sama hvað hún er annars staðar." Það hefði náttúrulega bremsað bankana af en þeir hefðu örugglega, með árangri, getað sannfært stjórnmálamenn þess tíma um að með því væri verið að hindra nýja atvinnustarfsemi og reglan innan EES væri sú að menn væru á sama leikvelli."
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Viðskipti erlent Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Penninn leggst í miklar breytingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Sjá meira