Krónuhrun þegar Kaupþing ryksugaði gjaldeyrismarkaðinn 12. apríl 2010 13:13 „
Þeir ryksuguðu gjaldeyrismarkaðinn og svo þegar þeir eru búnir að því þá hætta þeir að kvóta inn á swap-markaðinn sem gerir það að verkum að í mars 2008 bara hrynur krónan og við stóðum náttúrulega algjörlega ráðþrota í málinu því að þegar þetta gerist fara CDS-in (skuldatryggingarálagið, innsk. blm.) á bankann upp og það eru komnar alls konar áhyggjur af þeim þannig að erlendir aðilar sem eiga krónur þeir bara fara í panik að selja."Þetta kemur fram í skýrslu Sturlu Pálssonar, forstöðumanns alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Þeir sem Sturla ræðir hér um er Kaupþing.Allt árið 2007 og fyrstu tvo mánuði ársins 2008 er það jafnan Kaupþing, með nokkrum undantekningum, sem lánar hinum bönkunum tveimur, Glitni og Landsbankanum, erlendan gjaldeyri á samningstímanum.Sérstaka athygli vekur há staða bankans á móti Glitni í desember árið 2007, eða um 477 milljónir dollara sem samsvaraði á þeim tíma um 324 milljónum evra, en segja má að þannig hafi Glitnir fengið aftur frá Kaupþingi nokkurn hluta af því lausafé í gjaldeyri sem Kaupþing keypti á millibankamarkaði með gjaldeyri.Í mars árið 2008, þegar vaxtamunur á evru og íslenskri krónu er að þurrkast út, er svo töluverður umsnúningur á viðskiptum á skiptasamningamarkaði og þá sækir Kaupþing til sín gjaldeyri frá hinum bönkunum tveimur. Í kjölfarið verður svo nokkurs konar hrun á markaðnum þar sem afar fáir skiptasamningar eru gerðir næstu mánuði.Undir lok ársins 2007 og í upphafi árs 2008 er svo umtalsvert magn af evrum keypt af Kaupþingi eða í gegnum Kaupþing, eða tæpir 2 milljarðar evra, á einungis um einum og hálfum mánuði. Seljandi gjaldeyris á sama tíma virðist aðallega vera Glitnir en einnig veitir Landsbankinn, sem viðskiptavaki, töluverðu magni af gjaldeyri inn á markaðinn.Þessi miklu kaup virðast þó ekki hafa umtalsverð áhrif á gengi krónunnar umfram þá veikingu sem átti sér stað á nálægum tímabilum. Mest verður gengisfallið á krónunni nokkru síðar eða frá síðari hluta febrúar og fram til loka mars árið 2008.Í skýrslu Sturlu Pálssonar, forstöðumanns alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis kom raunar fram að þessi miklu kaup Kaupþings á gjaldeyri hefðu valdið töluverðum titringi innan Seðlabanka Íslands og sendi Seðlabankinn beiðni til Fjármálaeftirlitsins um að það kannaði ástæðu viðskiptanna.„Í desember 2007 breytist hegðun Kaupþings á millibankamarkaði með gjaldeyri algjörlega. Þeir hætta að selja svo mikið sem evru og þeir verða bara svona svarthol. Frá desember 2007, janúar 2008, febrúar 2008, þá kaupa þeir 2,3 milljarða evra á millibanka-markaði með gjaldeyri."Rannsóknarnefnd Alþingis hefur undir höndum bréf Seðlabanka Íslands til Fjármálaeftirlitsins, dagsett 2. apríl 2008, er varðar mögulega markaðsmisnotkun Kaupþings og Exista á gjaldeyrismarkaði. Fjármálaeftirlitið svaraði erindinu í bréfi 7. ágúst 2008 á þann hátt að við athugun þess hefðu ekki komið fram vísbendingar um brot á þeirri löggjöf sem Fjármálaeftirlitið hefði eftirlit með.
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Viðskipti erlent Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Penninn leggst í miklar breytingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Sjá meira