Formúla 1

Whimarsh telur að framþróun McLaren geti fært liðinu titilinn

Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren Formúlu 1 liðsins.
Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren Formúlu 1 liðsins. Mynd: Getty Images/Mark Thompson
Martin Whitmarsh hjá McLaren telur að framþróun McLaren á keppnisbíl þeirra Lewis Hamilton og Jenson Button geti fært liðinu meistaratitilinn í Formúlu 1. Hamilton vann síðustu keppni, sem var í Kína og McLaren keppir í Tyrklandi um aðra helgi.

Sebastian Vettel er efstur í stigamóti ökumanna með 68 stig, en Hamilton er með 47. Í stigakeppni bílasmiða er Red Bull með 105 stig, en McLaren 85.

„Að sigra í Kína var frábær uppskera fyrir þá miklu vinnu sem hefur verið framkvæmd á mótssvæðum og í bækistöð McLaren til að gera MP-26 (McLaren) að sigurbíl. Við erum spenntir og hraðinn og þolgæðin sem ökumenn hafa sýnt í fyrstu þremur mótunum á fjarlægum slóðum er hvatning", sagði Martin Whitmarsh í fréttatilkynningu frá McLaren.

McLaren liðið varð í fyrsta og öðru sæti í kappakstrinum í Tyrklandi í fyrra, en Lewis Hamilton kom fyrstur í endamark á undan Jenson Button.

„Við þurfum að bæta okkur í tímatökum og auka keppnishraðann, ef við ætlum að halda áfram að ógna á toppnum. Það verða mörg lið með endurbætur fyrir tyrkneska kappaksturinn og enginn getur staðið í stað. Við munum skoða nokkrar endurbætur á föstudagsæfingunum."

„Hraði í framþróun er það sem getur fært okkur meistaratitilinn og við mætum til Tyrklands, staðráðnir í að endurbæturnar færi okkur hagkvæmar lausnir og auka möguleika ökumanna okkar. Mótið í fyrra var eitt það mest spennandi í minningunni og sú minning verður án vafa hvatning fyrir allt liðið", sagði Whitmarsh um mótið í Tyrklandi um aðra helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×