Formúla 1

Enn óljóst hvort Formúlu 1 mót verður í Barein 2011

Mótssvæðið í Barein er hannað af Hermann Tilke.
Mótssvæðið í Barein er hannað af Hermann Tilke. Mynd: Getty Images/John Moore
Frestur sem FIA, alþjóðabílasambandið gaf Formúlu 1 mótshöldurum í Barein til að sækja aftur um mót á þessu ári rann út í gær. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins átti upphaflega fara fram 15. mars í Barein. Vegna póltísks ástands í landinu var því frestað, en FIA gaf mótshöldurum færi á því til sunnudagsins 1. maí að sækja um að koma mótinu á síðar á árinu.

Samkvæmt frétt á autosport.com í dag eru þó skipuleggjendur mótsins í Barein enn í viðræðum við þá sem ráða gangi mála Í Formúlu 1.

Mótshaldarar lýstu því formlega yfir á sunnudag að þeir hefðu áhuga á mótshaldi í framtíðnni, en engin tímasetning var sett á blað. Formaður mótssvæðisins í Barein, Zayed Rashid Alzayani sagði að í forgangi væri að finna lausnir á vandamálum landsins, en hann sagði daglegt líf smám saman vera færast í jákvæða átt í Barein.

Samkvæmt frétt autosport.com í dag er möguleiki á því, samkvæmt heimildum vefsins að ákvörðun varðandi mótshald í Barein geti orðið ljós fyrir mótið í Tyrklandi um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×