Formúla 1

Vettel vann fimmta kappaksturinn á tímabilinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sebastian Vettel hitti Geri Halliwell fyrir keppnina.
Sebastian Vettel hitti Geri Halliwell fyrir keppnina. Mynd/Nordic Photos/Getty
Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull tryggði sér sigur í Mónakó-kappaksturinn í formúlu eitt í dag eftir hraða keppni við Spánverjann Fernando Alonso hjá Ferrari og Englendinginn Jenson Button hjá McLaren.

Þetta er í fyrsta sinn sem Vettel vinnur í Mónakó en hann hefur hinsvegar unnið fimm af sex keppnum tímabilsins til þessa. Vettel er þar með kominn með 58 stiga forskot á Lewis Hamilton í keppni ökumanna en Hamilton, sem er í öðru sæti í Heimsmeistarakeppninni, varð aðeins í sjötta sæti í dag.

Óhöpp settu mikinn svip á kappaksturinn í Mónakó alla helgina og það þurfti meðal annars að endurræsa keppnina þegar aðeins sex hringir voru eftir. Vitaly Petrov lenti þá í árekstri og það þurfti að flytja hann burtu í sjúkrabíl.

Úrslit og staða í formúlu eitt:Lokastaðan í Mónakó:

1. S Vettel Red Bull

2. F Alonso Ferrari

3. J Button McLaren

4. M Webber Red Bull

5. K Kobayashi Sauber

6. L Hamilton McLaren

7. A Sutil Force India

8. N Heidfeld Renault

9. R Barrichello Williams

10. S Buemi Toro Rosso

Staðan í Heimsmeistarakeppni ökumanna:

1. S Vettel Red Bull 143

2. L Hamilton McLaren 85

3. M Webber Red Bull 79

4. J Button McLaren 76

5. F Alonso Ferrari 69

6. N Heidfeld Renault 29

7. N Rosberg Mercedes 26

8. F Massa Ferrari 24

9. V Petrov Renault 21

10. K Kobayashi Sauber 19




Fleiri fréttir

Sjá meira


×