Valskonur unnu toppslaginn á móti Stjörnunni Óskar Ófeigur Jónsson á Vodafonevellinum skrifar 31. maí 2011 21:08 Mynd/Daníel
Valskonur urðu fyrstar til að taka stig af Stjörnukonum í Pepsi-deild kvenna í sumar þegar þær unnu 2-1 sigur í toppslagnum á Hlíðarenda í kvöld. Valur komst með sigrinum í toppsætið deildarinnar en Eyjaliðið fær tækifæri til að endurheimta það í Kópavoginum á morgun. Stjarnan hafði unnið Valsliðið tvisvar á undirbúningstímabilinu og var með fullt hús fyrir leikinn á sama tíma og Íslandsmeistarar Vals töpuðu tveimur stigum í Árbænum í leiknum á undan. Mist Edvardsdóttir kom aftur inn í byrjunarlið Vals og þakkaði fyrir sig með því að skora fyrsta markið eftir hálftíma leik með skalla eftir hornspyrnu Hallberu Guðnýju Gísladóttur. Kristín Ýr Bjarnadóttir kom Val síðan í 2-0 á 66. mínútu með glæsilegum skalla eftir fyrirgjöf frá Thelmu Björk Einarsdóttur. Hin eldfljóta Ahkeelea Mollon minnkaði muninn í fjórðu mínútu í uppbótartíma eftir skyndisókn og stungusendingu frá Kristrúnu Kristjánsdóttir en markið kom alltof seint. Stjörnuliðið byrjaði báða hálfleiki af krafti en það var ekki nóg. Valsliðið gaf fá færi á sér, vann sig síðan inn í leikinn og landaði mikilvægum sigri í toppbaráttunni. Sóknarleikur Stjörnunnar var ekki nærri nógu beittur og þær féllu á stóru prófi í kvöld. Það er þó nóg eftir að sumrinu en Valskonum er örugglega létt að ná að vinna dýrmætan sigur eftir tvo slaka leiki í upphafi móts.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Valsmenn settu sex gegn Grindavík Íslenski boltinn „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Gísli og félagar með fullt hús stiga Fótbolti Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Handbolti Fleiri fréttir Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Sjá meira