Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði þrennu fyrir Íslandsmeistara Vals sem unnu 4-1 sigur á Aftureldingu í Mosfellsbænum í 5. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Stjarnan vann 2-1 sigur á Þór/KA fyrir norðan, Breiðablik vann sinn annan leik í röð og Þróttarakonur fögnuðu sínum fyrsta sigri í sumar.
Caitlin Miskel kom Val í 1-0 í Mosfellbænum en Valskonur þurftu að bíða í 65 mínútur eftir markinu. Kristín Ýr skoraði síðan þrennuna sína á tólf mínútna kafla áður en Elín Svavarsdóttir minnkaði muninn í lokin. ÍBV og Valur eru nú jöfn á toppi deildarinnar en ÍBV er með betri markatölu.
Soffía Gunnarsdóttir tryggði Stjörnunni 2-1 sigur á Þór/KA fyrir norðan en þetta var fyrstu sigur Garðabæjarstúlkna á náttúrulegu grasi í sumar. Sigurmark Soffíu kom tíu mínútum fyrir leikslok. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kom Stjörnunni í 1-0 eftir 25 mínútur en Manya Makoski jafnaði leikinn fyrir hálfleik.
Breiðablik fór í Árbæinn og vann 2-1 sigur en þetta var annar sigur Blikana í röð eftir að liðið náði í aðeins eitt stig út úr fyrstu þremur umferðunum. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir og Andrea Ýr Gústavsdóttir komu Breiðabliki í 2-0 en Fjóla Dröfn Friðriksdóttir minnkaði muninn fyrir Fylki.
Soffía Kristinsdóttir, Valgerður Jóhannsdóttir, Margrét María Hólmarsdóttir
og Fanny Vago skoruðu mörk Þróttar í 4-2 heimasigri á botnliði Grindavíkur en Shaneku Gordon og Anna Þórunn Guðmundsdóttir komu báðar Grindavík yfir í leiknum.
Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af fótbolti.net.
Kristín Ýr með þrennu fyrir Val sem komst upp að hlið ÍBV
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


Norsk handboltastjarna með krabbamein
Handbolti

Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn



Stjarnan staðfestir komu Caulker
Íslenski boltinn



