Sex leikmenn Pepsi-deildarliðs Þórs/KA hafa ákveðið að leggja baráttunni gegn brjóstakrabbameini lið með sérstökum hætti. Þær ætla að gefa áritaða íþróttatoppa sína sem síðan verða svo seldir á uppboði síðar í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórsara.
„Stelpurnar í Þór/KA taka þátt í þessu að frumkvæði Manyu Makosky og er þetta er gert í samvinnu við vin hennar í Bandaríkjunum sem stendur fyrir þessu verkefni. Að sögn Makosky munu leikmenn víða að úr heiminum taka þátt í þessu verkefni. Stefnt er að því að uppboðið hefjist síðari hluta júlí mánaðar á eBay og þá munu allir eiga þess kost að bjóða í toppana," segir í fréttinni á thorsport.is.
Auk Manyu Makosky sjálfrar eru það systurnar Arna Sif og Eva Hafdís Ásgrímsdætur, Karen Nóadóttir, Marisha Schumacher–Hodge og Rakel Hönnudóttir sem gáfu íþróttatoppa sína á uppboðið.
Það má sjá frétt um málið hér en þar er einnig viðtal við Manyu Makosky sem sést hér fyrir ofan.
Þór/KA-liðið verður í eldlínunni í kvöld þegar þær taka á móti Stjörnunni á Þórsvellinum í fimmtu umferð Pepsi-deildar kvenna.
