Fylkir vann KR - ÍBV marði Grindavík Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júní 2011 22:32 Valskonur halda toppsæti deildarinnar eftir sigur í kvöld Mynd/HAG
Heil umferð fór fram í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í dag. Helst bar til tíðinda sigur Fylkis á KR í sex stiga leik í Vesturbænum. Þá lenti ÍBV í basli með Grindavík en hafði að lokum sigur. KR og Fylkir voru bæði með sjö stig fyrir leik liðanna í gærkvöldi og því mikið undir. Anna Björg Björnsdóttir skoraði eina mark leiksins tæpum tíu mínútum fyrir leikslok. Fylkir fer upp í 5. sætið með sigrinum og hefur þriggja stiga forskot á Breiðablik og KR. Valskonur eru enn ósigraðar í deildinni en þær sóttu Þróttara heim í Laugardalinn. Elín Metta Jensdóttir, Caitlin Miskel og Mist Edvardsdóttir skoruðu mörk Íslandsmeistaranna í 3-1 sigri. Margrét María Hólmarsdóttir skoraði mark Þróttar. Valur heldur eins stigs forystu á toppi deildarinnar. Í Mosfellsbænum fór Stjarnan létt með Mosfellinga 4-0. Þær Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir komu Garðbæingum yfir í fyrri hálfleik. Í þeim síðari bættu Ashley Bares og Hugrún Elvarsdóttir við mörkum og öruggur sigur í höfn. Stjarnan heldur í við Valskonur og munar áfram einu stigi á liðunum. Í Eyjum leit lengi vel allt út fyrir fyrsta sigur Grindavíkur í sumar. Sarah Wilson kom þeim gulklæddu yfir í upphafi síðari hálfleiks. Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom sínu liði til bjargar með tveimur mörkum á síðustu fimm mínútunum og tryggði 2-1 sigur. ÍBV heldur því þriðja sætinu, þremur stigum á eftir Val og tveimur á eftir Stjörnunni. Fyrr í dag vann Þór/KA góðan sigur á Blikastelpum 4-2. Fjallað var um leikinn fyrr í dag hér á Vísi. Upplýsingar um markaskorara eru að hluta fengnar frá vefsíðunni Fótbolti.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira