Formúla 1

Webber fljótastur í tímatökunni á Silverstone

Mark Webber hjá Red Bull náði besta tíma í tíðmatökum á Silverstone í dag.
Mark Webber hjá Red Bull náði besta tíma í tíðmatökum á Silverstone í dag. AP mynd: Tim Hales
Mark Webber á Red Bull verður fremstur á ráslínu í breska kappakstrinum á Silverstone brautinni í Bretlandi á sunnudag. Hann náði besta tíma í tímatökum í dag og varð á undan liðsfélaga sínum Sebastian Vettel, en Fernando Alonso náði þriðja sæti á Ferrari og Felipe Massa á samskonar bíl því fjórða.

Fremstur heimamanna varð Jenson Button á McLaren og Paul di Resta á Force India náði sínum besta árangri í tímatökum, en hann er fæddur í Skotlandi og nýliði í Formúlu 1 á þessu ári. Annar nýliði, Pastor Maldonado á Williams frá Venusúela náði sjöunda besta tíma. Þriðji heimamaðurinn, Lewis Hamilton verður tíundi á ráslínunni.

Tímarnir af autosport.com



1. Mark Webber Red Bull-Renault 1m30.399s

2. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m30.431s + 0.032

3. Fernando Alonso Ferrari 1m30.516s + 0.117

4. Felipe Massa Ferrari 1m31.124s + 0.725

5. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m31.989s + 1.590

6. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m31.929s + 1.530

7. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m31.933s + 1.534

8. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m32.128s + 1.729

9. Nico Rosberg Mercedes 1m32.209s + 1.810

10. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m32.376s + 1.977

11. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m32.617s + 0.977

12. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m32.624s + 0.984

13. Michael Schumacher Mercedes 1m32.656s + 1.016

14. Vitaly Petrov Renault 1m32.734s + 1.094

15. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m33.119s + 1.479

16. Nick Heidfeld Renault 1m33.805s + 2.165

17. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m34.821s + 3.181

18. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m35.245s + 2.575

19. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m35.749s + 3.079




Fleiri fréttir

Sjá meira


×