Ef þig langar að fríska aðeins upp á eldhúsið þitt, án þess þó að gera róttækar breytingar, þá eru glærar krukkur skemmtileg tilbreyting.
Hægt er að ná fram litum og áferð í eldhúsinu án þess þó að mála eða veggfóðra. Þetta kemur æðislega vel út ef þú ert með opnar hillur í eldhúsinu eins og sjá má á þessum myndum.
Fjárfestu í nokkrum glærum krukkum og settu krydd, kaffibaunir, tepoka eða hvað sem þér dettur í hug, til að ná fram litagleði og tilbreytingu. Gamlar sultu- og ostakrukkur í bland við nýjar í mismunandi stærðum koma einstaklega vel út.
Ef þú átt ekki gamlar krukkur heima þá eru þessar krukkur seldar út um allan bæ í Reykjavík. Þær fást til að mynda í Ikea, Sösterne Grene og ekki má gleyma Góða Hirðinum. Svo er líka voða krúttlegt að dúlla sér við að merkja þær. Þá er bara að kíkja í kryddhilluna og eldhússkápana og finna hvað þú vilt nota.
Facebooksíða Sæbjargar - Saja Interior Design
Ódýr snilld í eldhúsið

Tengdar fréttir

Steyptar borðplötur vinsælar núna
Steypan hefur verið vinsæl undanfarið. Steypan er ekki bara flott, heldur er hún ódýr og umhverfisvæn líka...

Svona gerir þú ofninn fallegri
Ofnar geta verið ansi leiðinleg fyrirbæri og ekki erum við öll svo heppin að hafa hita í gólfinu hjá okkur. En við þurfum nú samt á þeim að halda, sérstaklega á okkar yndislega landi þar sem getur orðið ansi kalt á vetrarkvöldum...

Lífið er ekki bein lína
Þetta er ekki bara vistvænt heldur líka svakalega flott og færir parketið yfir á næsta plan...

Veggfóður vinsælt
Vinsældir veggfóðurs hafa aukist undanfarin ár. Nú er samkeppnin orðin mikil og fólk óhrætt við að prófa nýjungar....

Ýkt flott og hræódýrt
Frystihúsaflísar, sundlaugaflísar eða hvað sem þið viljið kalla þær, þá eru þær komnar aftur inn. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndaalbúmi...