Sérstakur saksóknari handtók og yfirheyrði fyrrum starfsmenn Glitnis eftir hádegi í dag en rannsókn embættisins snýr að lánveitingum Glitnis og viðskiptum með hlutabréf.
Í tilkynningu frá sérstökum saksóknara segir að til rannsóknar séu eftirfarandi háttsemi:
1. Kaup eigin viðskipa Glitnis á hlutabréfum útgefnum af bankanum á verðbréfamarkaðinum. Einnig kaup bankans og ráðstöfun á hlutabréfum útgefnum af FL Group.
2. Lánveitingar til ýmissa félaga vegna kaupa á hlutabréfum útgefnum af bankanum í lok árs 2007 og á árinu 2008. Upphaflegur höfuðstóll nefndra lánveitinga er talinn nema samtals tæpum 37 milljörðum króna.
3. Viðskipti með framvirka samninga í hlutabréfum útgefnum af bankanum.
4. Sölutrygging Glitnis á 15 milljarða hlutafjárútboði FL Group áramótin 2007 og 2008.
„Um er að ræða alls níu mál sem rannsókn hófst á í dag en samhliða var unnið áfram við rannsókn á svokölluðu Stím máli, en sú rannsókn hófst á síðasta ári. Mál til rannsóknar sem tengjast aðgerðunum í dag eru því alls tíu talsins.
Til rannsóknar er grunur um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum bankans, brot á lögum um verðbréfaviðskipti, lögum um fjármálafyrirtæki, lögum um ársreikninga og lögum um bókhald. Um er að ræða rannsóknir á fjölmörgum tilvikum og um háar fjárhæðir er að tefla. Ljóst er að yfirheyra þarf allstóran hóp manna í tengslum við rannsóknirnar.
Málunum var vísað til embættis sérstaks saksóknara annarsvegar með kærum frá Fjármálaeftirlitinu og hinsvegar með tilkynningum frá slitastjórn Glitnis á þessu ári en málin hafa verið til meðferðar síðan.
Í morgun hófust yfirheyrslur yfir sakborningum og vitnum í málunum en ráðgert er að yfirheyrslur haldi áfram næstu daga. Alls tóku um 60 starfsmenn embættisins þátt í aðgerðunum í dag.
Embætti sérstaks saksóknara getur ekki gefið frekari upplýsingar um greindar aðgerðir að svo stöddu," segir í tilkynningunni.
