Sléttunarmeðferð sem endist í nokkra mánuði 9. janúar 2011 11:00 Arnar Tómasson hjá Salon Reykjavík. Fréttablaðið/Vilhelm
Krullhærðir vita að það getur farið illa með þurrt og hrokkið hár að slétta það. Natura Keratin er ný byltingarkennd stofumeðferð sem sléttar hár án þess að taka hárböndin í sundur og virkar fyrir hið krullaðasta hár sem og allar hárgerðir og dugir í þrjá til fimm mánuði. Nokkrar hárgreiðslustofur hafa tekið þessa meðferð upp og þeirra á meðal er Salon Reykjavík á Grandagarði, en Keratin Islandia er umboðsaðili Natura Keratin. „Ólíkt því sem sléttunaraðferðir geta jafnan gert, að taka hárböndin í sundur og setja þau aftur saman, gerir meðferðin þveröfuga hluti fyrir hárið," segir Arnar Tómasson hjá Salon Reykjavík. Krullað hár fyrir Natura Keratin-meðferðina. Meðferðin er fyrir bæði kynin. „Hún gerir það mjúkt, slétt og sterkara með hjálp fljótandi keratíns sem festist utan um hvert einasta hár og myndar þannig verndarhjúp.“ Arnar segir meðferðina vera afar vinsæla vestanhafs, í Bandaríkjunum sem og í Brasilíu.Hárið orðið slétt tæpum tveimur tímum síðar.Meðferðin getur tekið allt frá einni og hálfri upp í fimm klukkustundir. Keratín er sett í hvern einasta lokk, hárið þurrkað með efninu í og hver einasti lokkur hitaður með sléttujárni til að festa keratínið utan á hárinu. Síðan má ekki þvo hárið næstu þrjá daga á eftir.Fyrir meðferð voru liðir í hárinu.„Sléttunarmeðferðin kemur sérstaklega vel út fyrir þá sem eru með þurrt, opið og slitið hár, þar sést mestur munur.Einnig gefur meðferðin fyllingu þannig að hárið hangir ekki lint niður. Þeir sem vilja svo fá liðina öðru hverju fram geta það vel, því meðferðin tekur liðina ekki alveg í burtu.Það þarf að fara aðeins yfir með sléttujárninu á hverjum degi til að fá það alveg slétt," segir Arnar.Eftir meðferð er hárið orðið slétt og hefur fengið auka lyftingu.Kostinn við meðferðina segir Arnar meðal annars vera að engin rót kemur, líkt og í permanetti, heldur dofnar efnið smám saman úr hárinu. Meðferðin endist lengur hjá meðhöndluðu hári en efnameðhöndluðu. „Það sem helst þarf að passa upp á eftir meðferð er að forðast sjampó með ákveðnum efnum í, súlfötum og natríumklóríði, en þessi efni leysa keratínið of hratt upp." juliam@frettabladid.is
Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Fleiri fréttir Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira