Meistari hylltur í Hörpu Trausti Júlíusson skrifar 31. maí 2011 11:00 Óttar Felix Hauksson sá um forsönginn í uppklappslaginu Like A Rolling Stone. Mynd/Jóhann Ísberg
Bob Dylan-heiðurstónleikar. Silfurberg, Harpan 28. maí. Það var troðfullt hús í Silfurbergi á laugardagskvöldið þegar Memfismafían ásamt hópi söngvara flutti lög eftir Bob Dylan í tilefni af 70 ára afmæli hans. Maður heyrir stundum að lög Dylans séu fín, ef einhver annar syngur þau, en það er auðvitað rugl. Það syngur enginn Dylan betur en hann sjálfur. Hins vegar er Dylan einn af öflugustu laga- og textahöfundum sögunnar og margar eftirminnilegar útgáfur til af tónlist hans í meðförum annarra. Tónleikarnir á laugardagskvöldið voru ágætlega heppnaðir. Söngvararnir skiptust á að syngja, ýmist með hljómsveitinni eða einir með kassagítarinn. Stuck Inside Of Mobile With The Memphis Blues Again var flott í meðförum Sigurðar Guðmundssonar, KK túlkaði Girl From The North Country af næmni, Lay Low var frábær í It Ain't Me Babe og Björgvin Halldórsson gaf sig allan í Forever Young. Mér fannst Bubbi yfirkeyra Just Like A Woman, en það er auðvitað bara mín skoðun. Helgi Björns hefur oft verið betri, en það var samt kraftur í Thunder On The Mountain hjá honum og bandinu. Dylan-sveitin Slow Train tók tvö lög og skilaði sínu ágætlega. Tónleikarnir stóðu í tæpa þrjá tíma og rúmlega tuttugu lög voru spiluð. Hápunktar voru útgáfa Páls Rósinkrans af Hurricane sem var síðasta lag fyrir hlé, samsöngur systranna Ólafar og Klöru Arnalds í Mr. Tambourine Man, tilfinningahlaðin útgáfa Þorsteins Einarssonar Hjálmasöngvara af I Shall Be Released og uppklappslagið, Like A Rolling Stone. Í því komu allir listamenn á svið og sungu saman, en skipuleggjandi tónleikanna Óttar Felix Hauksson sá um forsönginn. Dylan talar ekki á milli laga sjálfur, en Ólafur Páll Gunnarsson kynnti hvert lag og söngvara á laugardagskvöldið. Ætli orðafjöldinn hjá Óla á tónleikunum hafi ekki verið svona álíka og hjá Dylan á öllum tónleikum samanlagt síðustu tuttugu ár. Á heildina litið var þetta góð kvöldstund. Það er til siðs í fínustu tónleikahúsum heims að hylla meistara tónlistarsögunnar. Einn þeirra var hylltur í Hörpu á laugardagskvöldið. Niðurstaða: Dylan-aðdáendur fögnuðu sjötugsafmæli átrúnaðargoðsins á skemmtilegum tónleikum.
Mest lesið Galopnar sig og segist ætla að breyta hlutunum Lífið Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Tónlist „Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ Lífið Skilin að borði og sæng eftir 28 ára hjónaband Lífið Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið „Rétturinn sem fjölskyldan þín mun elska og biðja um aftur og aftur“ Lífið Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Tónlist Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Menning Útbjó lágkolvetna prógram fyrir systur sína sem léttist strax og fékk meiri orku Lífið Fleiri fréttir Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Veisla fyrir augu og eyru Ekki er allt gull sem glóir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Sjá meira