Ísland eftir ragnarök 29. júní 2011 10:00 Það er fátt notalegra en að hoppa upp í flugvél um sumarnótt við Miðjarðarhafið, fá sér svo léttan blund í náttmyrkrinu og rumska ekki fyrr en nætursólin gægist yfir norðurheimskautið. Þar sem ég er svo brenndur af því að hafa verið hér á landi í hruninu ákvað ég síðan í geislum nætursólar að taka sérstaklega vel eftir því, meðan á dvöl minni stæði hér á landi, hvernig land og þjóð hefðu breyst frá því að örlaganornirnar veittu þeim þessar þungu lexíur. Ég man það vel að þegar allt var að fara á hvolf taldi ég fullvíst að ekkert yrði sem áður. Innra með mér var ég sífellt að kveðja þetta gamla, góða Ísland og bjó mig meira að segja undir að þurfa að ganga í lörfum þegar Levi’s-buxurnar, sem ég keypti á vordögum 2005, væru úr sér gengnar. Ég drakk hvert rauðvínsglas líkt og það væri hið hinsta þar sem slíkur lúxus myndi hverfa í tómið með Íslandi hinu gamla. Það var alltaf verið að tala um að við myndum fara svona og svona langt aftur í tímann, rétt eins og líðandi stund væri einungis fyrir þá efnameiri. Ég var farinn að lesa Öldina okkar til að gera mér í hugarlund hvað við ættum í vændum. Þegar ég var síðan kominn að umfjölluninni um Thomsensbíl greip örlaganornin í stýrið og ég hélt af landi brott. Svo var það hugarfarið sem átti að taka slíkum stökkbreytingum að ég var farinn að halda að eflaust þyrfti maður að kynnast sínum íslensku vinum og ættingjum upp á nýtt. Nú er ég kominn til baka, hef meira að segja dvalið hér nokkra daga við rannsókn mína. Þótt rannsókninsé enn á byrjunarstigi hef ég strax greint gífurlegar breytingar. Ég man til dæmis ekki eftir slíkum kulda í júnímánuði fyrir hrun. Síðan er Gillz orðinn skornari, eflaust vegna mikils samdráttar. En hvað sem þessum breytingum áhrærir hef ég nú þegar ákveðið hvað gera skuli næst þegar heimurinn virðist vera að farast. Þá ætla ég að minnast orða Nóbelskáldsins okkar þegar hann sagði: „Þegar öllu er á botninn hvolft, þá fer allt einhvernveginn, þótt margur efist um það á tímabili.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun