Í túninu heima Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 13. júlí 2011 06:00 Undanfarnar tvær vikur hef ég fylgst með íslenskri æsku og hefur það fyllt mig síðbúnum áhyggjum. Hugurinn hverfur nefnilega til æskudaga á Bíldudal þegar við Logi héldum Evrópukeppni meistaraliða í túninu heima. Þó við værum aðeins tveir varð okkur ekki skotaskuld úr því að fara með hlutverk tuttugu og tveggja leikmanna, dómara og síðan tókum við okkur í munn alla frasana hans Bjarna Fel til að lýsa gangi leiksins. Þeir sem leið áttu hjá létu sér ekki bregða þótt Logi hlypi um túnið með hendur upp í loft og hrópaði „jeh" en það átti hann til að gera þegar hann skoraði mikilvægt mark. Fór ég þá fyrst með hlutverk vonsvikins markvarðar sem skammaðist yfir slökum varnarleik sinna manna en síðan brá ég mér í hlutverk samherja Loga og fagnaði honum með því að keyra hann niður í grasið, setjast klofvega yfir hann og hrópa fagnaðaróp svo undir tók í dalnum. Eitt sinn sá Öddi okkur í þessum aðförum og klóraði sér í hausnum. Til allrar hamingju var þetta fyrir þá tíð er leikmenn fóru að tína af sér spjarirnar um leið og þeir skora mikilvægt mark. Leikmenn sem okkur þóttu leiðinlegir stóðu sig venjulega ekki vel á þessum mótum. Til dæmis var Ian Rush oftast rekinn út af með skömm eða var hreinlega ekki á skotskónum. Eftir úrslitaleikinn var síðan farið upp á svalir en þar afhenti ég Loga forlátan útiblómapott sem hann hampaði með miklum fögnuði enda vel að honum kominn. Eitt sinn varð Jón á Hóli vitni að slíkri verðlaunaafhendingu. Hann sagði: „jah, strákarnir" og þá var málið útrætt. Nú hef ég séð að svo kexruglaðir krakkar eru vandfundnir. Kannski er samfélagið orðið svo móðins að passað er upp á að þeir séu ekki á víðavangi. En þá vaknar sú spurning, hvernig svona rugludallar fengu að fljóta í gegnum Grunnskóla Bíldudals svo til óáreittir. Því er til að svara að á níunda áratugnum voru sálfræðingar jafn sjaldséðir á Bíldudal og rostungar. Nei, ég lýg því, það kom einn rostungur og lagðist á hafnargarðinn árið 1984. Árið sem Ipswich Town vann Evrópukeppni meistaraliða í túninu heima. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun