Ööögúlp!! Gerður Kristný skrifar 7. nóvember 2011 06:00 Um daginn hitti ég skemmtilega konu sem sagði mér að hún hefði eitt sinn tekið sig til og eldað ýmsa rétti sem hún hafði séð bregða fyrir í bókum. Hún hafði svo oft velt fyrir sér bragðinu af öllum bökunum, kássunum og búðingunum sem sögupersónurnar röðuðu í sig. Svona geta bækur vakið oft forvitni lesenda um líf annarra. Ég hef líka oft leitt hugann að því hvernig labbkássan smakkast í einu teiknimyndasögunni sem ég eignaðist sem krakki, Ástríki og útlendingahersveitinni. Það þurfti reyndar bæði botnlangakast og garnaflækju til að ég fengi hana. Ég var 11 ára gömul og lá inn á barnadeild Landspítalans þegar bekkjarsystur mínar birtust feimnar og hikandi inni í þessari hvítu og hljóðu veröld með Ástríksbókina meðferðis. Labbkássan sem Ástríkur og Steinríkur slöfruðu í sig vakti forvitni mína og stundum fannst mér spítalafæðið hreint ekki svo ólíkt. Kjötið af höfrunum hans Þórs í dönsku Goðheimabókunum væri líka gaman að smakka. Mér fannst ég hafa himin höndum tekið þegar Forlagið byrjaði að gefa aftur út þennan skemmtilega og fræðandi bókaflokk, enda löngu uppseldur. Þar er sagt frá norrænu goðunum og ævintýrum þeirra og oft farið frjálslega með, enda er það alltaf langskemmtilegast. Þarna birtast guðirnir svo ósköp hugdjarfir og snjallir en líka fljótfærir og sérhlífnir. Í fyrstu bókinni, Úlfurinn bundinn, kemur Þór við á sveitabæ í Miðgarði þar sem systkinin Röskva og Þjálfi búa. Þór býður upp á að öðrum hafrinum hans sé slátrað og hann étinn en hafurinn birtist aftur stálslegnir ef beinunum er safnað saman aftur að áti loknu. Þjálfa verður það hins vegar á að brjóta eitt beinið og þá fýkur í þrumuguðinn. Hann skikkar drenginn til að gerast skósveinn sinn til að bæta fyrir brotið og tekur hann með til Ásheima. Röskva stelst með. Hafur sem hrekkur aftur í samt lag þótt honum sé slátrað kvöld eftir kvöld er vitaskuld draumur hverrar fjölskyldu. Svoleiðis grip væri gott að eiga. Annars er mikið etið og drukkið í Goðheimabókunum. Timburmenn og jafnvel uppköst af þeim sökum koma við sögu. Í bókinni Sagan af Karki kastar Loki upp eftir mikið húllumhæ með hljóðunum: „Ööögúlp!!“, „Böööhö!!“ og „Búúöööh!!“ Viðhorfið við timburmönnum er líka einfalt og Loki segir jötunbarninu Karki: „Karlmenn fá iðulega timburmenn sem vara allan daginn…Það eina sem gildir þá er bara að þrauka!“ Það má margt læra af bókum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Gerður Kristný Mest lesið Hvers vegna var Úlfar rekinn? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun Að apa eða skapa Rósa Dögg Ægisdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Skoðun Gangast við mistökum Júlíus Birgir Jóhannsson Skoðun Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía? Baldvin Ingi Sigurðsson Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær Harpa Fönn Sigurjónsdóttir Skoðun Lífsnauðsynlegt aðgengi Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu Eiríkur Rögnvaldsson Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun