Geymslur um land allt eru fullar af varningi sem ein jól allir þurftu að eignast. En litskrúðugur gjafapappírinn utan af herlegheitunum hafði ekki fyrr blandast í ruslafötunni kalkúnahræinu og rauðkálinu sem enginn vildi en í ljós kom að notagildið var ekkert. Óttinn við að íþyngja þannig geymsluplássi fólks veldur því að ég skelf við tilhugsunina um jólagjafakaup og ýti þeim á undan mér alveg þar til kæfandi skötufnykurinn verður til þess að afneitunin snöggrennur af mér.
Sumum kann að þykja þetta aum afsökun. Eftirfarandi eru dæmi um hvernig jólagjafakaupin geta farið úrskeiðis. Ég skora á þig, lesandi góður, að fyllast ekki lamandi ótta við upptalninguna.
- Sundlaugarbláa fótanuddtækið frá danska raftækjaframleiðandanum Clairol seldist í 14.000 eintökum fyrir jólin 1982 í Radíóbúðinni sálugu. Á mínu heimili hefur það æ síðan geymt grifflur og legghlífar sömu jóla.
- Síðar sama áratug bar Radíóbúðin ábyrgð á háværustu jólum sítt að aftan tímabilsins þegar allir drengir fengu Lazer-Tag byssur í jólagjöf. Skaðræðisvælið er kvað við í hvert sinn sem skotið var í mark varð til þess að gefandinn fékk þrálátan hiksta.
- Óþarft er að fjölyrða um hið mikla fjaðrafok kringum ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Halldór Laxness frá 2003. Þar sem ég skemmti mér yfir lesningunni tók háskólaprófið mitt í sagnfræði að visna á köntunum svo bókin var færð niður í geymslu af öryggisástæðum.
- Sem kornabarn fékk ég í jólagjöf flúrað skjal. Um var að ræða hlut í óskabarni þjóðarinnar, Eimskipafélagi Íslands. Þrjátíu árum síðar var táknrænn pappírssnepillinn meira virði en það sem hann stóð fyrir.
Sjáumst í búðunum.