Borgarráð samþykkti í dag að laxveiðitímabilið í Elliðaánum verði lengt. Mikil umfram eftirspurn var eftir leyfum í ánum fyrir þetta sumar. Fengu því mun færri félagsmenn Stangaveiðifélags Reykjavíkur leyfi í ánum en vildu.
Vegna stöðunnar sem upp var komin óskaði SVFR í febrúar eftir því við Orkuveitu Reykjavíkur að tímabilið yrði lengt um tuttugu daga nú í sumar; um fimm daga framan við tímabilið sem á að hefjast 20. júní og um fimmtán daga aftan við tímabilið sem ella hefði endað í lok ágúst.
Orkuveitan óskaði í framhaldinu eftir því við Reykjavíkurborg að heimild yrði gefin fyrir fjölgun daganna og samþykkti borgarráð erindið í dag. Ekki kemur fram í fundargerð borgarráðs í dag nákvæmlega hversu mörgum dögum var á endanum bætt við.
Krafa er gerð um það að eingöngu sé veitt á flugu frá og með 1. september og að öllum laxi sem þá veiðist sé sleppt.
Veiðitímabilið lengt í Elliðaánum
