Býst við bullandi veiði eftir þurrkatímabil Kristján Hjálmarsson skrifar 17. júlí 2012 11:35 Í Norðurá. Veiði í Norðurá fór vel af stað en síðustu vikur hefur heldur dregið úr henni vegna veðurblíðunnar. Laxinn bíður við Ármótin þar til áin kólnar. Mynd/Trausti "
Þetta eru nú ekki kjöraðstæður fyrir veiðimenn en nú horfir maður með bros á vör á veðurspána," segir Bjarni Júlíusson, formaður Stangveiðifélags Reykjavíkur. Miklir þurrkar hafa verið um allt land og hefur það bitnað töluvert á laxveiðiám landsins. Að sögn Bjarna er nóg af fisk - hann bíði bara eftir því að ganga upp árnar. "Ef við tökum á eins og Norðurá þá gengur fiskurinn upp Hvítá og hangir svo í Ármótunum og við Brennuna. Þar er alveg afbragðsveiði. Norðuráin er hins vegar allt of heit svo fiskurinn fer ekki þar upp. En nú er rigning í kortunum og við vonumst til að það fari allt í bullandi gang með rigningunni og stórstreyminu um helgina," segir Bjarni. Að sögn Bjarna hafa verið óvenju miklir þurrkar hér á landi frá árinu 2007 með lítilli úrkomu í júní og júlí en veiðin hafi engu að síður verið góð. "Nú er nóg af laxi. Það þarf bara að fá hann af stað," segir formaðurinn. "Litlu árnar á Vesturlandi, Dunká, Fáskrúð og fleiri sem og Laxá í Dölum hafa verið ágætar í sumar en eins og ég segi þá býst ég við að allt fari á fullt um helgina." Bjarni segir að veiðisumarið hafi byrjað mjög vel. "Laxinn var snemma á ferðinni og það var voru kröftugar göngur í júní. Laxinn kom fyrr en við bjuggumst við og ég hef sem dæmi ekki séð svona góða byrjun í Norðuránni. Fyrri júlístraumurinn skilaði hins vegar ekki jafn mörgum löxum og í fyrra svo það hægði aðeins á þessu en ég spái því að stóri straumurinn nú um helgina eigi eftir að breyta öllu." kristjan@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði Höfum misst stjórn á refastofninum Veiði Gróska í veiðiþáttum í sumar Veiði Teljaraniðurstöður úr Gljúfurá Veiði Fyrstu laxarnir á land úr Mýrarkvísl Veiði Sportveiðiblaðið er komið út Veiði Mikil fjöldi erlendra gæsaveiðimanna Veiði Ágæt byrjun lofar góðu í laxveiðiánum Veiði Mest sótt um Elliðaárnar Veiði