Veiði

Merktur í Lagarfljóti en veiddist í Breiðdalsá!

Hrygnan var merkt í laxastiganum í Lagarfljóti í fyrra en veiddist þann 16. júlí í Réttarhyl í Breiðdalsá.
Hrygnan var merkt í laxastiganum í Lagarfljóti í fyrra en veiddist þann 16. júlí í Réttarhyl í Breiðdalsá. Mynd/Strengir
Merkilegur lax veiddist nýlega í Réttarhyl í Breiðdalsá en þar kom á land 76 sentímetra hrygna með útvarpsmerki innvortis. Bráðabirgðaniðurstöður benda til að þessi lax hafi verið merktur í laxastiganum í Lagarfljóti 21. september 2011. Þar með hefur hann farið aftur til sjávar og gengið svo í Breiðdalsá. Það má bæta því við að laxinn lítur út fyrir að vera úr gönguseiðasleppingu og hugsanlega úr sleppingu í Jöklu eða Breiðdalsá en verið að kíkja inn í Lagarfljótið er hann náðist og var merktur.

Elstu menn í Breiðdalnum muna ekki eftir ánum svo vatnslitlum í júlí eins og verið hefur undanfarna daga. Einn daginn rigndi reyndar smávegis og þá var sett í 8 - 9 laxa og landað 5 löxum, en annars hefur þetta verið mjög rólegt. All höfðu veiðst 69 laxar í gærkvöldi en meðalþyndin er helst til að gleðja menn en hún er rúm 10 pund, samkvæmt veiðibók Breiðdalsár á vef Strengja.



Það hefur verið skelfilega lítið vatn í Hrútafjarðará, en í dag rignir þó á svæðinu og þá kemur eflaust kippur í veiðina loksins þar. En góð bleikjuveiði hefur bjargað miklu í Hrútu og þá úr neðsta veiðistaðnum Dumbafljóti.

Úr Jöklusvæðinu reytist alltaf eitthvað af laxi upp flesta daga, þá helst úr Kaldá og upp í Steinboga í Jöklu sjálfri. Kaldá heldur alltaf góðu vatni, en meira að segja Jökla er komin niður í 10-12 rúmmetra á sekúntu sem er ekki mikið fyrir það fljót og rigning væri líka vel þegin þar á bæ.

Það horfir vel með helgina því spár eru með mjög ákveðna rigningu í kortunum og verður væntanlega spennandi vika framundan í flestum laxveiðiám landsins.

svavar@frettabladid.is






×