Hrefnusteik með wasabi-beikon-kartöflumús 24. ágúst 2012 11:00 Úlfar Eysteinsson mun elda beikon ofan í gesti og gangandi á beikonhátíðinni um helgina.
Það verður ósvikin beikon stemning á Skólavörðustígnum næstkomandi laugardag 25. ágúst kl. 14 þegar beikonhátíðin Reykjavík Beikon Festival verður haldin hátíðleg. Allir landsmenn eru hjartanlega velkomnir og þeim sem þykir gott að gæða sér á beikoni eru sérstaklega hvattir til að koma því boðið verður upp á beikon í kílóavís sem verður grillað ofan í mannskapinn. Beikonhátíðin í Reykjavík er árlegur viðburður en fyrsta hátíðin var haldin í fyrra og vakti mikla lukku. Gestum og gangandi gefst kostur á að gæða sér á úrvals íslensku og amerísku beikoni, smakka framandi beikon innblásna rétti frá nærliggjandi veitingastöðum, dilla sér við lifandi tónlist og blanda geði við aðra beikonunnendur. Úlfar Eysteinsson á Þremur frökkum er einn þeirra sem munu elda beikon ofan í gesti og gangandi en hann deilir hér flottri uppskrift fyrir helgina að sjálfsögðu með smá beikoni.Hrefnusteik með wasabi-beikon-kartöflumús Það verður ósvikin beikonstemning á Skólavörðustígnum á morgun, laugardaginn 25. ágúst klukkan 14.00 þegar beikonhátíðin Reykjavík Beikon Festival verður haldin hátíðleg. Allir landsmenn eru hjartanlega velkomnir og þeir, sem þykir gott að gæða sér á beikoni, eru sérstaklega hvattir til að koma því boðið verður upp á beikon í kílóavís sem verður grillað ofan í mannskapinn.2 x 100 g hrefnukjöt Skerið kjötið í 1 cm þykkar sneiðar. Steikið í 36 sekúndur á fyrri hliðinni og 32 sekúndur á þeirri seinni.Wasabi-kartöflumús með beikonbitum, borin fram með sojasósu í skál700 g kartöflur2 msk. smjör5 msk. mjólk1 tsk. til 1 msk. wasabi-krem (wasabi paste)6 sneiðar steikt beikon, smátt skorið1 msk. sojasósa Setjið kartöflurnar í pott, látið kalt vatn í pottinn og látið það ná um 3 cm yfir. Látið kartöflurnar sjóða í 15-20 mínútur, eða þangað til þær eru soðnar í gegn. Hellið vatninu af. Stappið kartöflurnar með gaffli eða kartöflustappara. Bætið í mjólk, smjöri, steiktu beikoni og wasabi-kremi. Hrærið þessu varlega saman, passa þarf að hræra ekki of mikið, þá verður kartöflumúsin stíf. Skammtur fyrir 4.
Kartöflumús Sjávarréttir Uppskriftir Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið