Dágott gengi hjá lokahollinu í Þverá 12. september 2012 08:15 Fossinn efst í Litlu-Þverá er fallegur en erfiður veiðistaður. Aðeins voru bókaðir tveir laxar upp úr þessari þverá Þverár í sumar.
Síðasta hollið í Þverá þetta haustið veiddi mun betur en hollin á undan og náði ellefu löxum á land auk nokkurra sjóbirtinga. Að sögn veiðimanns úr lokahollinu voru sumir laxanna vel yfir 70 sentímetra mörkunum og því sleppt. Var sá lengsti í kringum 90 sentímetrar. Þá settu menn mun í fleiri laxa sem ekki náðist að landa. Steinahylur var sá staður sem gaf langbest. Sem fyrr segir veiddust einnig nokkrir sjóbirtingar. Sá stærsti var glæsilegur, rúmlega 70 sentímetra hængur sem vóg átta og hálft pund. Kuldi og rok var það sem veðurguðirnir buðu lokahollinu upp á og er árangurinn þeim mun ánægjulegri. Á lokavaktinni á mánudagsmorgun veiddist reyndar ekki neitt enda var þá norðan hvassviðri, eins stigs hiti og snjófjúk. Þess utan var áin lituð ofan til, að því er talið var vegna moldroks uppi á heiðum. Það skal þó tekið fram að mannskapurinn gaf sig að sjálfsögðu ekki og reyndu hvað þeir gátu þar til yfir lauk.gar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Flugufréttir og Veiðivon fagna veiðisumrinu næsta föstudag Veiði Verður að gæda við Rio Grande til vors Veiði Víðidalsá komin í 25 laxa og áinn í góðu vatni Veiði 314 laxar komnir úr Stóru Laxá Veiði Stóra Laxá að ná 400 löxum Veiði Dýrasti dagurinn á 450.000 í Laxá í Ásum? Veiði Veiðivötn búin að rjúfa 10.000 fiska múrinn Veiði 144 laxar komnir úr Svalbarðsá Veiði Eystri Rangá komin í 2.050 laxa Veiði Nýjar vikutölur úr laxveiðinni Veiði