Lala fór með línur úr Sopranos Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. október 2012 10:23 Textinn er úr Sopranos.
Það vakti verulega athygli þegar Vísir sagði frá beinskeyttum árásum Lala á Pó á Vísi í gær. Þar birtust myndbrot úr þætti sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 krakkar í gærmorgun. Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, varð vör við textann þegar hún kveikti á sjónvarpinu um morguninn. Textinn átti alls ekki heima með stubbaþættinum, eins og gefur að skilja. Um var að ræða texta úr þættinum Sopranos sem fjallar um mafíufjölskyldu og baráttu hennar við lífið og tilveruna. Atriðið sem textinn er úr snýst um það þegar Christopher Moltisant, einn úr fjölskyldunni, mætir á fund móður sinnar, unnustu og fleiri kunningja sem hafa áhyggjur af því að fíkniefnin séu að bera hann ofurliði. Christopher mun hafa nýlega drepið hundinn sinn með því að setjast á hann þegar hann var undir áhrifum fíkniefna. Þá hafi hann verið undir áhrifum þegar líkvaka fór fram yfir gamalli konu. Hér fyrir neðan sést atriðið úr Sopranos sem hefði átt að vera textað í stað Stubbaþáttarins.
Tengdar fréttir Harðskeytt Lala segir Pó til syndanna Hann var eitthvað harðskeyttari einn af Stubbunum þegar þeir Lala og Pó birtust á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 krakkar. 25. október 2012 15:48 Mest lesið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Hélt við konu besta vinar síns Lífið Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Lífið Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Lífið Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira
Harðskeytt Lala segir Pó til syndanna Hann var eitthvað harðskeyttari einn af Stubbunum þegar þeir Lala og Pó birtust á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 krakkar. 25. október 2012 15:48