Þunglyndislyf á þrjú hundruð síðum 25. október 2012 14:06 Milla eftir Kristínu Ómarsdóttur.
Milla Kristín Ómarsdóttir JPV-útgáfa 2012 Bók Kristínar Ómarsdóttur um Millu er mög lokkandi fyrir augað, silfruð og fjólublá á lit. Aðalsögupersónan er líka aðlaðandi manneskja, þótt hún sé þunglynd og hafi ekki alveg gert það upp við sig hvort hún vilji lifa mikið lengur. Sögusviðið er Reykjavík á vordögum árið 2001. Milla er 21 árs gömul og starfar sem bókavörður. Hún er fengin til að sinna óvenjulegu skrásetningarverkefni fyrir hina velstæðu Ernu Amelíu Friðriksdóttur, en verkefnið ber heitið Safnið um hina venjulegu íslensku fjölskyldu í lok tuttugustu aldar. Milla vinnur verk sitt af kostgæfni þó að Erna Amelía reynist ætla henni stærra hlutverk en ráðgert var í fyrstu. Það sem á huga söguhetjunnar allan er sambandið við Maríu. Það er ástríðufullt og yndislegt, en líka erfitt og þráhyggjukennt og það er ansi tvísýnt hvort Milla muni ná að halda ástinni sinni hjá sér. Hún leitar mikið til móður sinnar og er sífellt að skrifa ömmu sinni bréf, en fær af einhverjum ástæðum engin svör. Margar skringifrásagnir af upplifunum Millu er að finna í bókinni og þær gera hana einkar skemmtilega aflestrar. Eins og alltaf í texta Kristínar Ómarsdóttur er einhver skratti í stílnum, sem kitlar hláturtaugarnar (og raunar ýmsar aðrar taugar í leiðinni). Munúðarfullar lýsingar á kynlífi og mat draga lesandann til sín: María bítur í kókosbolluna, augnlokin víbra eða titra, varirnar verða blíðari en barns sem þekkir aðeins bragð brjóstamjólkur. Kókosbollan hverfur ofan í magann, varirnar skjálfa og lófar mínir nema skjálftann í iljunum, um líkama hennar fara kippir áður en hún opnar augun og grípur í fót minn. Eins og kókosbolluát sé ekki nægilega forboðið, þá taka Milla og ástkona hennar yfirvegaða ákvörðun um að byrja að reykja og bera sig æði nautnalega að því banvæna sporti, því "lífið verður að vera áhættunnar virði". Milla er þroskasaga ungrar stúlku sem reynir að finna sína fjöl. Hún glímir við ástina og þuglyndið, þá ólseigu fjára, en sinnir líka þeim mörgu hlutverkum sem lífið færir manni. Er starfsmaður, dóttir, barnabarn og vinkona þó að hún hafi ekki fyllilega ákveðið hvort hún vilji sinna þeim hlutverkum eða stytta sér leið út úr þessum heimi. Niðurstaða: Skemmtileg, frumleg og fagurlega skrifuð. Bætir, hressir og kætir.
Gagnrýni Mest lesið Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Tónlist Fleiri fréttir John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira