Veiði

Mótmæla harðlega banni við rjúpnaveiði í Húnaþingi-vestra

Kristján Hjálmarsson skrifar
Skotvís mótmælir harðlega ákvörðun sveitarstjórnar Húnaþings vestra um að leggja bann við rjúpnaveiðum á ákveðnum svæðum innan sveitarfélagsins.
Skotvís mótmælir harðlega ákvörðun sveitarstjórnar Húnaþings vestra um að leggja bann við rjúpnaveiðum á ákveðnum svæðum innan sveitarfélagsins.
Skotveiðifélag Íslands (Skotvís) mótmælir harðlega ákvörðun sveitarstjórnar Húnaþings vestra um að leggja bann við rjúpnaveiðum á ákveðnum svæðum innan sveitarfélagsins nema gegn greiðslu fyrir hverja byssu fyrir hvern dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skotvís.

"Þessi árlega tilkynning sveitarfélagsins tengist úrskurðarmáli sem brátt verður tekið fyrir af óbyggðanefnd, en sveitarstjórn sýnir almenningi mikinn hroka með því að skapa óvissu meðal veiðimanna um réttarstöðu þeirra með þessum hætti," segir meðal annars á vef Skotvís.

Svæðið sem um ræðir er annarsvegar Víðidalstunguheiði ásamt Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Öxnatungu, og hinsvegar Arnarvatnsheiði og Tvídægra (sem nær niður í Borgarbyggð). Skotvís hefur mótmælt framferði sveitarstjórnarinnar undanfarin ár, segir á vef Skotvís, og m.a. óskað eftir upplýsingum um landamerki og önnur gögn er varða veghald vegarins uppá Víðidalstunguheiði. Þá hefur félagið átt samtöl við sveitarstjóra til að miðla málum auk þess aflað upplýsinga frá Vegagerðinni sem hefur styrkt gerð vegarins uppá Víðidalstunguheiði með almannafé.

"Framanaf hafði sveitarfélagið einnig brotið jafnræðisreglu stjórnsýslulaga með því að mismuna Íslendingum í gjaldtöku eftir búsetu. Sveitarstjórn virðist þó hafa lýst sig sammála áliti Skotvísí þessum lið og viðurkennt brot sitt hvað þetta varðar, sem undirstrikar nauðsyn þess að sýna stjórnvöldum og opinberum stofnunum stjórnsýslulegt aðhald," segir í fréttatilkynningu Skotís.

"Það sem gerir aðgerð Húnaþings vestra einstaklega óskammfeilna gagnvart almenningi þetta árið, er að nú hefur ríkið einnig gert kröfu á þetta sama landsvæði sem jafnframt eykur réttaróvissuna og breytir réttarstöðu skotveiðimanna meðan málið er tekið fyrir af óbyggðanefnd."

Skotvís fór fram á það við sveitarstjórn í lok árs 2010 að sýnt yrði fram á lögleg landarmerki til að gefa því kost á að sýna með óyggjandi hætti hver eignarrétturinn væri.

"Í opinberum svörum sveitarstjórnar og sveitarstjóra kemur skýrt fram að þessi landarmerki eru ekki aðgengileg og verið er að leita dyrum og dyngjum að sönnunargögnum svo hægt sé að leggja þau fram í dóm óbyggðanefndar í byrjun næsta árs," segir á vef Skotvís.

"Því lítur SKOTVÍS svo á að veiðar séu heimilar á þessu svæði, með vísan í 8.gr laga um verndun, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum (nr. 64/1994) þar sem segir:

"Öllum íslenskum ríkisborgurum, svo og erlendum ríkisborgurum með lögheimili hér á landi, eru dýraveiðar heimilar í almenningum, á afréttum utan landareigna lögbýla,enda geti enginn sannað eignarrétt sinn til þeirra.

Krafa íslenska ríkisins í ofangreint landssvæði er jafrétthá kröfu sveitarfélagsins og því er íslenskum þegnum (sbr. skilgreininguna hér að ofan) heimilt að veiða í þessu landi þar til óbyggðanefnd hefur kveðið upp úrskurð sinn og hugsanlega hæstiréttur. Ólíklegt er að dómstólar muni taka fyrir kærur út af þessarri stöðu"."

Skotvís vill meina að á þessu stigi sé Húnaþing vestra ekki viðurkenndur landeigandi að landssvæðinu og því hafi réttarstaða skotveiðimanna batnað eftir að ríkið gerði kröfu í sama svæði.

"Hver svo sem úrskurður óbyggðanefndar/Hæstaréttar verður, þá munu skotveiðimenn sýna sóma sinn í því að gangast við þeirri niðurstöðu og virða rétt réttmætra landeigenda eins og kveðið er á um í siðareglum félagsins. SKOTVÍS vill ennfremur hvetja landeigendur og ábúendur til að stuðla að innleiðingu siðareglna meðal þeirra veiðimanna sem fá að veiða í einkalöndum," segir á vef Skotvís.






×