Verð laxveiðileyfa í sögulegu hámarki Trausti Hafliðason skrifar 22. desember 2012 18:19 Bjarni Júlíusson segir að Stangaveiðifélagið hafi gengið í gegnum margvísleg áföll eftir hrunið. Mynd / Pjetur
Óhætt er að segja að í dag sé mikil undiralda meðal veiðimanna enda hefur verð á veiðileyfum hækkað mikið. Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, ræðir stöðu mála í laxveiðinni, netaveiði, fjárhagsstöðu félagsins og margt fleira í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu dag og nú hér á Veiðivísi. En áður en við förum í þungu málin skulum við fræðast örlítið um manninn.Veiddi fyrsta laxinn sjö ára gamall - 19 pund! Bjarni er borinn og barnfæddur Grundfirðingur þó seinna hafi hann flutt á mölina eins og sagt er. „Ég er Grundfirðingur í húð og hár," segir Bjarni. „Það var sérstaklega gaman að alast upp á Grundarfirði ekki síst vegna þess að þar er mikið af skemmtilegum veiðikostum og stutt að fara í góða veiði, auk þess sem bryggjan var stunduð óspart." „Pabbi var og er mikill veiðimaður. Hann stundaði bæði silungsveiði og laxveiði og við systkinin, sem vorum reyndar tvö á heimilinu þá, vorum mjög ung þegar við vorum fyrst dregin með. Ég held ég hafi verið sex ára þegar ég fór í fyrsta laxveiðitúrinn en það var í Svartá í Húnavatnssýslu. Sjö ára veiddi ég síðan minn fyrsta lax í Svartá. Veiðistaðurinn var Blóti og hann var 19 pund. Það leið nærri hálf öld þar til ég landaði stærri laxi! Eins og margir vita er mikil og góð silungsveiði fyrir vestan. Við strákarnir vorum mjög ungir þegar við fyrst fórum að veita því athygli þegar sjóbleikjan og sjóbirtingurinn voru að hnusa af æti við ströndina og árósana og að sjálfsögðu köstuðum við agni fyrir þann fisk. Við fórum einnig mikið í vötnin við Vatnaleiðina eins og Hraunsfjarðarvatn og Baulárvallavatn en sérstaklega var farið í Selvallavatnið. Þarna eyddum við guttarnir óteljandi dögum yfir sumarið. Þannig byrjaði mín veiðimennska og hún er búin að standa svo til óslitin síðan ef frá eru talin árin frá 1982 til 1985 þegar ég var í námi í Flórída í Bandaríkjunum." Allt í lukkunnar velstandi en svo kom hrunið Stangaveiðifélag Reykjavíkur er nærri 74 ára gamalt og hefur verið einn stærsti aðilinn á íslenskum veiðileyfamarkaði undanfarna áratugi. Í félaginu eru nú um fjögur þúsund félagsmenn, veltan er um hálfur milljarður króna og félagið hefur haft um 25-35 prósent af íslenskum laxveiðileyfum innan sinna vébanda. Þegar Bjarni hætti sem formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur árið 2007, eftir að hafa gegnt því starfi við góðan orðstír í þrjú ár, grunaði hann ekki að þremur árum seinna myndi hann snúa aftur til starfa fyrir félagið. Hann hugsaði ekki einu sinni út í það. Hann segist hafa skilið vel við félagið, enda hafi ekki annað verið hægt í því góðæri sem ríkti þá. Félagið hafi átt tugi milljóna króna í banka og eigið fé hafi verið vel á annað hundrað milljónir. „Allt var í lukkunnar velstandi en svo kom hrunið," segir Bjarni.Staðan var orðin býsna slæm Árið 2010 var Bjarni beðinn um að taka við formennsku í félaginu á ný. „Staðan var orðin býsna slæm og við vildum leggja allt á okkur til þess að reyna að koma félaginu aftur á lappirnar," segir Bjarni. „Upphaflega ætlaði ég bara að vera í eitt ár nú er ljóst að þau verða þrjú, því ég var endurkjörinn formaður á aðalfundi félagsins í lok síðasta mánaðar. Þetta er hefur verið mjög erfið vegferð en ég er nokkuð viss um að Stangaveiðifélagið sé búið að ná vopnum sínum aftur og leiðin liggi upp á við. Það verður líka að gerast því félagið er afar mikilvægt og sérstakt. Það var stofnað árið 1939 af nokkrum vinum sem vildu veiða í Elliðaánum, mig minnir að stofnfélagarnir hafi verið 19 og síðan þá hefur það vaxið og dafnað og verið leiðandi í þessum geira. Ef maður lítur aftur, þá eru nú ekki mörg alvöru félög í íslensku þjóðfélagi sem stofnuð voru á fyrri hluta síðustu aldar sem enn eru starfandi. Fyrir nokkrum árum hefði maður til dæmis getað nefnt Eimskip og Landsbankann en það er nú varla hægt lengur því í dag eru þetta alls ekkert þau félög sem þau voru. Eftir stendur þó Stangaveiðifélagið og þó við höfum gengið í gegnum margvísleg áföll í tengslum við hrunið þá höfum við staðið þau af okkur og ætlum okkur að lifa þessar hremmingar allar af." Bjarni segir að þó tap hafi verið á rekstrinum, þá hafi rekstur síðastliðins ár verið í ágætu standi og árið skili einum tíu milljónum til félagsins. „Við tókum okkur hins vegar til og hreinsuðum út síðustu dreggjar hrunins. Við afskrifuðum til dæmis allar vafasamar viðskiptakröfur og tókum hressilega til. Eftir þetta allt saman er eigið fé félagsins orðið neikvætt um tæpar tíu milljónir króna og það verður að vinnast upp næsta ár. Við ætlum að byrja nýtt ár með algjörlega hreint borð og ætlumst til þess að nú sé viðsnúningnum náð. Það er hins vegar alveg ljóst að við þolum ekki frekari áföll og ekki heldur að taka neina sénsa. Ég er alveg handviss um að þetta mun takast hjá okkur. Það er ekkert leyndarmál að síðustu ár hefur allur kraftur okkar farið í fjárhagsmálin, og kannski á kostnað félagsþáttarins. Næstu misseri ætlum við að einbeita okkur að því, svo eftir verði tekið, að byggja félagsstarfið sjálft aftur upp."Áhættusamur rekstur Bjarni segir að rekstur félags eins og Stangaveiðifélagsins sé í eðli sínu áhættusamur. „Oft erum við að leigja stórar og dýrar ár í þeim tilgangi að selja í þær veiðileyfi. Það má lítið út af bera og öll áhættan í þessum bransa í dag er á veiðileyfasalanum. Mér finnst það ósanngjarnt. Auðvitað eiga báðir aðilar, veiðileyfasalar og veiðiréttareigendur að axla þessar byrðar saman. Við tökum áhættuna af því að selja veiðileyfi og ef illa gengur þá berum við skaðann, gott og vel, það má alveg segja að það sé okkar mál. En svo tökum við jafnframt áhættuna af því hvernig náttúran fer með árnar sem við erum að leigja. Nærtækasta dæmið er síðasta sumar. Veiðin var einfaldlega skelfileg. Líklega var þetta lélegasta laxveiðisumar síðan árið 1930. Þegar það varð ljóst að laxinn væri ekki að ganga eins og venjulega þá brást auðvitað lausasala laxveiðileyfa því menn eru ekki að kaupa leyfi í á sem þeir vita að er algjörlega laxlaus. Og hver ber skaðann af því? Jú, við sem seljum veiðileyfin. Það er auðvitað ósanngjarnt. Mér finnst að menn eigi að axla þessa ábyrgð saman. Báðir aðilar þurfa að hafa hag af viðskiptasamstarfi ef það á að ganga upp. Ég vil reyndar taka það fram að margir af okkar viðsemjendum sýndu okkur skilning og komu til móts við okkur þegar á bjátaði í hruninu. Margir þeirra gáfu til dæmis eftir samningsbundnar vísitöluhækkanir á árleigum og það var mikill drengskapur í því fólginn."Keyptu leyfin og spurðu sjaldan um verð Verð á laxveiðileyfum er komið í hæstu hæðir að mati Bjarna. „Ég held ég geti fullyrt að verð laxveiðileyfa sé í sögulegu hámarki í dag. Þau hafa líklega tvöfaldast að raungildi á síðustu tveimur áratugum. Veiðileyfin hækkuðu líklega hvað mest í aðdraganda hrunsins – á hrunadansárunum. Þá jókst eftirspurnin eftir dýru leyfunum mikið. Íslenska krónan var mjög sterk og það var hreint og beint dýrt fyrir útlendinga að veiða hér á þessum árum. Íslensk fyrirtæki, bankarnir og fjárglæfrastofnanirnar, án þess að ég sé að kenna þeim einum um, leiddu því þessar hækkanir – ekki útlendingarnir. Þessi fyrirtæki keyptu hvert einasta laxveiðileyfi sem var falt og spurðu sjaldnast um verð. Laxveiði á Íslandi eru takmörkuð gæði og á þessum árum var eftirspurnin einfaldlega meiri, og það miklu meiri, en framboðið sem varð til þess að verð til veiðiréttareigenda hækkaði og dýrara varð að leigja árnar." Íslendingar bera markaðinn uppiBjarni sést hér við veiðar á Brotinu í Norðurá í byrjun síðasta sumars.Mynd / GVA„Ég hugsa að verð veiðileyfa hafi síðan lækkað að raungildi um 10-15 prósent á árunum eftir hrun, árin 2009 og 2010. En þá var krónan hrunin og skyndilega jókst kaupmáttur erlendra veiðimanna gríðarlega. Þeir tóku því upp slakann og í krafti þeirrar eftirspurnar hækkaði verðið á dýrustu tímunum aftur og veiðiréttareigendurnir fóru tiltölulega létt út úr hruninu. Nú held ég að verð á laxveiði sé einfaldlega í sögulegu hámarki hérlendis. Ég ætla samt að leyfa mér að vara veiðiréttareigendur við þessari stöðu. Erlendu veiðimennirnir eru ekki lausnin fyrir veiðiréttareigendurna því þeir kaupa nánast eingöngu leyfi á besta tíma. Erlendir veiðimenn kaupa sjaldan leyfi á svokölluðum jaðartíma eða ódýrustu veiðileyfin. Laxveiðitímabilið á Íslandi er um 100 dagar og þar af er þessi besti tími sennilega ekki nema 30-40 dagar. Þegar á heildina er litið verður markaðurinn alltaf borinn uppi af íslenskum veiðimönnum. Það er okkur öllum hollt að gera okkur grein fyrir því, bæði veiðileyfasölum og veiðiréttareigendum. Íslenskir veiðimenn kaupa sennilega um 2/3 af öllum laxveiðileyfum á landinu ár hvert. Vissulega eru þetta að jafnaði ódýrari leyfi, en magnið er slíkt að ef íslenskir segja „nei takk, við erum hættir" þá er markaðurinn í heild sinni í gríðarlegum vanda. Þetta gerðist síðastliðið sumar, erlendu veiðimennirnir keyptu sín leyfi með löngum fyrirvara en þeir íslensku, sem oft kaupa leyfi með skömmum fyrirvara, áttuðu sig á aflabrestinum og það seldist ekki ein stöng hjá okkur frekar en nokkrum öðrum veiðileyfasala eftir að veiðihrunið kom í ljós." Gríðarlegrar óánægju gætir meðal veiðimanna með verðþróun laxveiðileyfa. „Ég hef aldrei orðið var við jafnmikla undiröldu meðal veiðimanna og síðasta sumar," segir Bjarni. „Þeir höfðu samband við mig í tugatali og sögðu að nú væru þeir hættir – þetta væri bara orðið of dýrt. Þetta höfðum við hjá Stangaveiðifélaginu á bak við eyrað þegar við vorum að endurskoða verð á leyfum fyrir næsta sumar. Ég tel að við höfum brugðist nokkuð vel við, því af 21 laxveiðiá sem við seljum leyfi í þá er verðið óbreytt í níu. Hin svæðin eru flest að hækka á hógværu nótunum, svona í samræmi við vísitölu. Ég tel því að við höfum náð að standa ágætlega á bremsunni."Helgarferð til London ódýrari Bjarni segist persónulega ekki hafa efni á því að fara í laxveiði í flottri á á besta tíma, frekar en flestir Íslendingar. „Verð á laxveiðileyfum er einfaldlega orðið alltof hátt," segir Bjarni. „Það eru svo margir aðrir afþreyingarkostir í boði fyrir fólk að þeir sem aðild eiga að þessum veiðileyfamarkaði hljóta að þurfa að staldra við og hugsa hvort þessi þróun sé í lagi. Fyrir hátt í tuttugu árum ákváðum við sex vinahjón að fara í Hítará saman og viðmiðið var það að veiðiferðin fyrir hverja fjölskyldu mátti kosta svipað og helgarferð til London. Við fórum á besta tíma í júlí og þetta kostaði 120 þúsund krónur fyrir hver hjón – matur, uppihald og veiði. Í dag kostar þessi sama veiðiferð 600 þúsund krónur en helgarferðin til London kostar innan við 200 þúsund. Við erum löngu hætt og skoðum aðra miklu ódýrari kosti. Þetta er ekki í lagi."Ímynd stangveiðinnar er löskuð Bjarna finnst það miður hvernig umræðan um hin dýru laxveiðileyfi hefur tekið yfir og skemmt ímynd stangveiðinnar. „Fyrir mér á þetta að vera hollt og gott fjölskyldusport," segir Bjarni. „Þetta er útivist, náttúruskoðun og eitthvað sem allir Íslendingar eiga að geta stundað með fjölskyldunni. Þannig var þetta, þannig var ég alinn upp og ég veit ekkert skemmtilegra en að fara með konunni minni og börnum í veiði, veiða hóflega og geta svo grillað silunginn eða laxinn í lok veiðiferðarinnar með fólkinu mínu. Við verðum að tryggja að það verði hægt um ókomna tíð og það gerum við með því að efla félagsþáttinn í veiðinni og tryggja að aðilar eins og Stangaveiðifélag Reykjavíkur geti haldið áfram sínu góða uppbyggingar- og félagsstarfi."Fluttir á árbakkann í Elliðaárdal Fyrir tæpum áratug fékk SVFR úthlutað lóð í Elliðaárdal til að byggja húsnæði eða félagsheimili fyrir starfsemina. „Sem betur fer varð ekki af þeim hugmyndum," segir Bjarni, „en hugur félagins leitaði alltaf í dalinn, þar er jú uppruni félagsins og okkar lykilá. Þegar okkur bauðst húsnæði á árbakkanum þá gátum við ekki slegið hendinni á móti því, við seldum húsnæði okkar á Háaleitisbrautinni, greiddum niður skuldir og leigjum þessa fínu aðstöðu af Orkuveitunni í dag. Auðvitað er eftirsjá að gamla staðnum, þar vorum við í nærri hálfa öld, en húsnæðið var kannski ekki mjög hentugt fyrir starfsemina og þessi leið er einfaldlega hagkvæmari."Missir Stangaveiðifélagið Norðurá? Eins og veiðimönnum er flestum kunnugt hafnaði Veiðifélag Norðurár ósk Stangaveiðifélags Reykjavíkur um lækkun á leiguverði nú haust. Í kjölfarið var áin boðin út og er það ferli nú í gangi. Stangaveiðifélagið mun skila inn tilboði en ef félagið fær ekki ána er ljóst 66 ára samstarfi Stangaveiðifélagsins og Veiðifélags Norðurár er lokið í bili. „Ef við verðum undir í útboðinu þá yrði það mjög slæmt," segir Bjarni. „Norðurá hefur að mörgu leyti verið flaggskip Stangaveiðifélagsins en það gætu svo sem aðrar ár tekið við því hlutverki eins og Langá, með sína glæsilegu aðstöðu alla, nú eða Nessvæðið í Laxá í Aðaldal sem er ein fallegasta á landsins og fræg stórlaxaá. Síðan erum við auðvitað með flotta kosti eins og Hítará og Laxá í Dölum. Það er hins vegar annað sem skiptir líka miklu máli í sambandi við Norðurá og það er sú staðreynd að þar eru margir stangardagar sem við getum boðið félagsmönnum. Ef við missum þá daga þá lækkar auðvitað hlutfall stangardaga á félagsmann og þá þurfum við einhvern veginn að bæta við til þess að halda ákveðnu framboði af laxveiði okkar fólk. Þetta munum við fara yfir eftir að ljóst er hver niðurstaða útboðsins verður."Veiðihús setti SVFR næstum á hausinn Hrunið lék Stangaveiðifélag Reykjavíkur grátt en færri vita að félagið var næstum farið á hausinn fyrir fjörutíu árum. „Á erfiðleikaárunum í kringum 1970 stóð Stangaveiðifélagið fyrir húsbyggingu við Grímsá," segir Bjarni. „Veiðihúsið sem þar stendur var sem sagt alfarið reist á reikning SVFR og reyndist það félaginu afar þungbær fjárfesting. Eftir þessa stórframkvæmd var félagið í rauninni tæknilega gjaldþrota en það tókst að bjarga því fyrir horn. Stjórnarmenn og velvildarmenn gengust þá í persónulegar ábyrgðir fyrir félagið. Málin voru svo gerð þannig upp að félagið framseldi húsið til veiðiréttareigendanna í skiptum fyrir leigu á ánni í nokkur ár."trausti@frettabladidMynd/Úr einkasafni
Stangveiði Mest lesið Má skjóta bleikju með haglabyssu? Veiði Veiðin komin í gang á heiðunum Veiði Elliðaárnar: 31 lax á fyrsta degi Veiði Langá hækkaði um 30 sm í nótt Veiði Margir stórir fiskar sagðir á ferli í Varmá Veiði Er meiri veiði núna í Eystri Rangá en 2013 Veiði Fiskur í Hlíðarvatni í miklu fæði og hunsar veiðimenn Veiði Myndskeið af risalaxinum í Laxá í Kjós Veiði 48 laxa holl í Kjarrá Veiði Opin fyrirlestur um hreindýraveiðar Veiði