Grænland stöðvar tímann Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 6. febrúar 2012 10:00
Bíó. Qaqqat Alanngui. Leikstjórn: Malik Kleist. Leikarar: Ujarneq Fleischer, Eqaluk Høegh, Jeff Joensen, Aviaja Hegelund Johansen, Ane Sofie Kruse, Angunnguaq Larsen, Ulla Larsen Lennert, Angayo Lennert-Sandgreen, Mike Thomsen. Þvottavélin mín er tvær klukkustundir og tíu mínútur að þvo suðuþvott. Það er jafn langur tími og tekur að horfa á grænlensku kvikmyndina Qaqqat Alanngui (Skuggarnir í fjöllunum) sem hefur slegið aðsóknarmet í heimalandinu, en þegar þetta er skrifað hafa 18.000 manns séð myndina. Það spilar þó inn í að aðeins hafa Grænlendingar gert eina mynd áður upp á eigin spýtur og áhuginn því afar mikill. Söguþráðurinn er sagður byggja á grænlenskri þjóðsögu og ekki ætla ég að rengja það, en fyrirferðarmeiri eru þó afdankaðar klisjur úr bandarískum slægingarmyndum. Í stuttu máli segir myndin frá nokkrum unglingum á fylleríi í fjallakofa sem lenda í klónum á blóðþyrstum og yfirnáttúrulegum morðingja í selskinnskápu. Mestur tími fer í að leita að einhverjum einum sem er týndur, dauður eða hvort tveggja, og um leið og viðkomandi finnst aftur þá týnist sá næsti. Auðvitað hafa margar hrollvekjur reitt sig á þessa formúlu, og sumar jafnvel komist upp með það, en eftir tvær klukkustundir af engu öðru hættir maður að taka viljann fyrir verkið. Mér þykir þetta miður því ég held með Grænlandi, ég held með sjálfstæðum kvikmyndagerðarmönnum sem þora að taka sjensa og ég held með Bíó Paradís. Leikstjórinn er greinilega óreyndur og gerir ótal mistök sem nemendur á fyrsta ári í kvikmyndaskóla myndu ekki einu sinni gera. Hversu löng þarf sena eiginlega að vera þar sem fólk er sýnt drekka áfengi? Malik Kleist tekst allavega að búa til heilt tónlistarmyndband úr henni. Eða atriði þar sem drengur horfir á bát? Ég hefði komist langt með að rita æviminningar mínar meðan á því stóð. Því miður Grænland, en Qaqqat Alanngui er langdregnari og minna spennandi en suðuþvotturinn minn. Niðurstaða: Klúður frá A til Ö. Það góða er þó það að Grænlendingar munu ekki eiga í neinum vandræðum með að toppa þetta.
Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Fleiri fréttir Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira