Greindarlegt grín Elísabet Brekkan skrifar 14. febrúar 2012 19:00 Hundur í óskilum „Sýningin var ein gegndarlaus þindaræfing, slík voru hlátrasköllin,” segir gagnrýnandi Fréttablaðsins.
Leikhús. Saga þjóðar eftir Eirík G. Stephensen og Hjörleif Hjartarson. Sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri: Benedikt Erlingsson, leikmynd Dýri Bjarnar Hreiðarsson, Benedikt Erlingsson, búningar Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, tónlist: Hundur í óskilum, lýsing Gunnar Sigurbjörnsson. Í Borgarleikhúsinu er um þessar mundir verið að sýna sjóntónleik þar sem tvíeykið Hundur í óskilum rifjar upp Íslandssöguna og þeytist gegnum sköpunarsögu alheims auk þess að yrkja ný hetjukvæði um Jón karlinn Sigurðsson. Benedikt Erlingsson leikstýrir þeim félögum og er jafnframt dramatúrgur sýningarinnar, handbragð hans merkjanlegt í hraða frásagnar og fádæma sniðugum lausnum. Þeir Naddoður, Garðar Svavarsson og fleiri góðir menn fá sitt pláss og tengsl við atburði dagsins er víða smellt inn í eins og því að Hrafna-Flóki, hinn raunverulegi fyrsti Íslendingur, varð gjaldþrota eftir aðeins einn vetur í landinu. Bergþórshvoll brennur undir sniðugu lagi um Njálu og til að undirstrika orð sín og æði grípa leikararnir tveir til hvaða hljóðfæra sem er og ýmis þeirra með öllu ókunn fyrr. Á sviðinu er hljóðfæratré sem gott er að ná sér í instrument á. Þegar komið er að því að fjalla um Gunnar á Hlíðarenda og öll hans hjú og tengsl, munar Hjörleif Hjartarson ekkert um að fara með Gunnarshólma allan og Eiríkur kom nokkrum sinnum inn með flottum undirleik hins mikla bassa. Nálægari framapotarar en þeir sem vígbjuggust hér á víkingatímum fengu einnig sitt pláss og má segja að sýningin hafi verið ein gegndarlaus þindaræfing, slík voru hlátrarsköllin. Það er óvenjulegt að upplifa svona greindarlegt grín, sem þar að auki lyfti fram hlut kvenna og féll aldrei í þann algenga pytt að ná sér í hlátursgusur út á kvenfyrirlitningu. Þessa sýningu ætti að gera að skyldusýningu og bjóða svo upp á langar umræður á eftir. Niðurstaða: Íslandssagan í fylgd Hunds í óskilum er sprellfjörug sýning sem hentar öllum aldursflokkum.
Mest lesið Galopnar sig og segist ætla að breyta hlutunum Lífið Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Tónlist „Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ Lífið Skilin að borði og sæng eftir 28 ára hjónaband Lífið Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið „Rétturinn sem fjölskyldan þín mun elska og biðja um aftur og aftur“ Lífið Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Tónlist Útbjó lágkolvetna prógram fyrir systur sína sem léttist strax og fékk meiri orku Lífið Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Menning Fleiri fréttir Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Veisla fyrir augu og eyru Ekki er allt gull sem glóir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Sjá meira