Náttúruleg fegurð 30. mars 2012 06:00 Játning: Mér leiðast umhverfismál. Ég veit, ég veit, ég ætti að skammast mín. Ég bara get ekki að því gert. Þegar rammaáætlanir, megavött og ál ber á góma reikar hugurinn samstundis að mikilvægari málum eins og „hvað á ég að hafa í matinn í kvöld" eða „telst það löggild afsökun fyrir að þrífa ekki klósettið að mosagrænu rákirnar sem línustrika skálina gætu verið næsta stóra vísindauppgötvun á par við pensillín?" Fyrir áhyggjum af landi og náttúru treysti ég mér betri mönnum; Svandísi Svavarsdóttur; Andra Snæ Magnasyni. Þau kunna þetta. Ég sat nýverið á Soho hótelinu í Lundúnum og beið þess að taka viðtal við framleiðanda sjónvarpsþáttanna Game of Thrones. Til að drepa tímann fletti ég Fréttablaðinu. Hugurinn tók samstundis að reika: Mengunarvarnir eru öfgar – „mig langar í pitsu í matinn"; mannréttindi að fá að spæna upp utanvega-gróður – „ef næsta pensillín fyndist í klósettinu hjá mér fengi ég pottþétt Nóbelsverðlaun"; nauðsynlegt að reisa Búlandsvirkjun því Skaftárhrepp vantar búbót – „já, já, bla, bla". Svandís og Andri Snær sæju um að lesa þetta. Ég setti stefnuna á fólk í fréttum. „Ah, betra." Íslendingur að meikaða í útlöndum. „Frábært." Annar Íslendingur að meikaða í útlöndum. „Geggjað." Ég var niðursokkin í að dást að þeirri ómetanlegu landkynningu sem barmurinn á Ásdísi Rán er þegar útréttur armur framleiðandans braust inn í sjónlínu mína. Komið var að lokaspurningunni: „How did you like Iceland?" Ég hafði engan sérstakan áhuga á svarinu. Í huganum var ég komin í H&M verslunina við hliðina á hótelinu. En þar sem hluti nýju Game of Thrones-seríunnar var tekinn upp á Vatnajökli varð ég að spyrja. „Ísland er ólíkt öllu öðru sem ég hef séð!" Ákafi framleiðandans sló mig. „Við þurftum enga tölvugrafík á Íslandi. Þar eru til litir sem maður hefur aldrei séð áður. Fegurð Íslands er náttúruleg; hún er ekta." Daglega drekkum við í okkur fréttir af Íslendingum sem gera garðinn frægan erlendis; skáldum sem keyptu sér miða með Iceland Express til London og fundu þar ljósritunarvél; tónlistarmönnum sem sigldu með gítarinn til Köben og eru nú stórir á Strikinu. En okkur yfirsést Íslendingurinn sem raunverulega meikaði það í útlöndum. Um þessar mundir leikur íslensk náttúra eitt af aðalhlutverkum í einum vinsælasta sjónvarpsþætti heims. Ef til vill er tími til kominn að við leggjum þeim Svandísi Svavars og Andra Snæ lið og sýnum íslenskri náttúru jafnmikinn stuðning og við sýnum brjóstaskorunni á Ásdísi Rán. – (Sýningar á Game of Thrones hefjast 2. apríl á Stöð 2. Vatnajökul og umhverfi hans má sjá á Suðausturlandi – að minnsta kosti enn um sinn). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bakþankar Game of Thrones Nóbelsverðlaun Sif Sigmarsdóttir Skoðanir Mest lesið Þjóðarleiðtogi sem enginn tekur lengur mark á. Til hvers er hann þá? Júlíus Valsson Skoðun Samþjöppun auðs og hindranir fyrir ungt fólk á Íslandi Sigurður Sigurðsson Skoðun Fengu hvorugt varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Sameign þjóðarinnar — eða stærsta tilfærsla auðlinda í sögu Íslands? Vilhelm Jónsson Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir Skoðun
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun