Út um þúfur Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. maí 2012 15:00
Bíó. How I Spent My Summer Vacation. Leikstjórn: Adrian Grunberg Leikarar: Mel Gibson, Kevin Hernandez, Daniel Gimenez Cacho, Dolores Heredia, Peter Gerety, Peter Stormare. Það hefur verið átakanlegt að fylgjast með fréttum af stórstjörnunni fyrrverandi, Mel Gibson, undanfarin ár, en þessi margverðlaunaði leikari og leikstjóri hefur ítrekað afhjúpað sinn innri mann, og það virðist ekki vera neitt sérlega vandaður maður. Í kjölfarið er kvikmyndaferill hans nokkuð laskaður og nýjasta mynd leikarans, How I Spent My Summer Vacation, fór beint á VOD-ið í Bandaríkjunum (undir nafninu Get the Gringo) án viðkomu í kvikmyndahúsum. Hvort það var gert af framsækni eða illri nauðsyn þori ég ekki að fullyrða, en þegar Gibson á í hlut er allt mögulegt. Söguþráðurinn er kunnuglegur og þarna höfum við viðkunnanlegan og slyngan ræningja í mexíkósku fangelsi, fégráðugar löggur, miskunnarlausan glæpaforingja og milljónir í íþróttatösku einhvers staðar. Inn í atburðarásina blandast svo tíu ára gamall piltur og einstæð móðir hans, en hvorki þarf kjarneðlisfræðing né stjarneðlisfræðing til að giska á sögulokin. Fyrri hluti myndarinnar er áhugaverður og margoft glittir í gamla Gibson, þann sem heillaði okkur í Lethal Weapon og Mad Max, og verður það ekki tekið af leikaranum að hann býr yfir heilmiklum sjarma og þægilegri nærveru. En um miðbik myndar fer sögumennskan út um þúfur og úr verður stefnulaust sull sem vill bæði vera hörkuspennandi og þrælfyndið, en er hvorugt. Þá er stafræn áferð myndarinnar virkilega ljót og fráhrindandi. Ég skil ómögulega hvers vegna stafræn kvikmyndataka virkar fullkomlega í sumum myndum og svo stundum alls ekki. Hér minnir útkoman á fjölskyldumyndband frá Kanarí. Niðurstaða: Aðdáendur leikarans eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á hann.
Mest lesið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Leikstjórinn James Foley er látinn Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Lífið Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Fleiri fréttir Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Bryan Adams breytti Eldborg í grátkór íslenskra karla Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt aldrei að bjóða óperusöngvara í matarboð Spegill, spegill, herm þú mér, hve léleg endurgerðin er Rislítil ástarsaga Sjá meira