Af hattaáti Erla Hlynsdóttir skrifar 22. maí 2012 08:00 Stóra stundin er runnin upp. Íslendingar keppa í fyrri forkeppni Júróvisjón í kvöld. Gréta og Jónsi koma fram sem fulltrúar okkar allra. Eflaust verða einhverjir stoltir. En það sem ég skal éta hattinn minn ef við vinnum. Ég skal meira að segja éta hann ef við endum á topp tíu. Jú jú, þetta er ágætt lag. Ég var alveg búin að venjast því þegar ég var búin að heyra það fimm sinnum. Ég er hins vegar ein af þeim sem var svo hefðbundin, eða svo ótrúlega framúrstefnuleg, að halda með Bláum Ópal og laginu Stattu upp. Ég fyrirgaf þessum hressu drengjum alveg að kunna ekki íslenska málfræði. Ég fyrirgaf þeim að kunna ekki íslenska setningaskipan. Ég vonaði bara svo innilega að þeirra lag kæmist áfram. Meirihluti þeirra sem kaus í símakosningunni var líka á sama máli. Það var ekki nóg. Blár Ópal skyldi bara dúsa á Selfossi. Í kvöld býr landinn til poppkorn, fær sér kóksopa og fylgist spenntur með því þegar fulltrúar Íslands flytja sigurlagið í Bakú. Ég hef samt ekki trú á þeim. Því miður. Þetta er auðvitað bannað. Svona eins og það er bannað að segja við eiginmanninn að þig langi nú stundum að sofa hjá einhverjum öðrum en honum, og það er bannað að segja við barnið sitt að það hafi aldeilis ekki teiknað fallegustu myndina af krökkunum í fyrsta bekk. Í kvöld stíga á stokk rússnesku ömmurnar krúttlegu, og þarna verða írsku hárprúðu tvíburarnir sem einnig tóku þátt í fyrra. Í seinni undankeppninni bætist síðan við sænska alsælulagið Euphoria sem hefur slegið í gegn hjá ungviðinu. Loks má búast við því að herra Humperdinck fái atkvæði frá einmana húsmæðrum sem gleyma sér eitt augnablik. Gréta og Jónsi eru eflaust hið besta fólk. Enda er þetta ekkert persónulegt. Páll Óskar lýsti því yfir í fyrra að hann skyldi éta hattinn sinn ef Ísland kæmist upp úr undanúrslitum. Lagið komst vissulega áfram (þó mér hafi aldrei fundist það neitt spes) og Páll Óskar þurfti aldeilis að borða brauðtertuhatt sem systir hans bjó til handa honum. Kannski er það bara það sem þetta snýst allt um. Frá því ég sá mynd af Páli Óskari með andlitið útmakað í majónesi hef ég vart hugsað um annað. Kannski er ég bara að búa mér til ástæðu til að borða (meira) majónes. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erla Hlynsdóttir Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun