Ekki eitt heldur fimm Jónas Sen skrifar 4. júní 2012 20:00 Duo Harpverk, Katie Buckley og Frank Aarnink, fluttu verk eftir fimm tónskáld á tónleikum í Kaldalóni í Hörpu þann 1. júní.
Tónlist. Duo Harpverk frumflutti nokkur verk. Kaldalón í Hörpu á Listahátíð í Reykjavík 1. júní. Ég set ekki mikið út á tónleikaskrár. Það er fyrst og fremst tónlistin sjálf og hvernig hún er flutt sem skiptir máli. Ég get þó ekki orða bundist vegna tónleikaskrárinnar á tónleikum á Listahátíð á föstudaginn var. Tónleikarnir voru haldnir af Duo Harpverk. Tvíeykið samanstendur af þeim Katie Buckley hörpuleikara og Frank Aarnink slagverksleikara. Þau fluttu verk eftir fimm tónskáld. Af tónleikaskránni mátti ætla að eitt þeirra væri í einhverju aðalhlutverki. Yfirskriftin var Kátínuvísindin og fleiri verk. Páll Ragnar Pálsson í Hörpu … enginn annar. Þetta var ekki svona. Kátínuvísindin eftir Pál var aðeins fimmtungur efnisskrárinnar. Hin verkin voru álíka löng og veigamikil. Svona klúður var móðgandi fyrir hin tónskáldin og Listahátíð ekki til sóma. Fyrsta tónskáldið var Áskell Másson og tónsmíðin hans nefndist Poem. Hún var eingöngu fyrir hörpu, snyrtilega samsett, tónmálið lagrænt og fallegt. Næst á dagskrá var Peculiar Place fyrir slagverk og hörpu eftir Pétur Grétarsson. Maður hefur hingað til ekki heyrt mikið eftir hann. Hægferðug tónlistin kom skemmtilega á óvart. Hún var mjög leitandi í fyrstu (eins og hún átti greinilega að vera) en náði smám saman fókus. Sá fókus kristallaðist í rólegum en ábúðarfullum takti sem skapaði mikla stemningu. Dance on Water eftir Andrew Gen. Popoff kom einnig ágætlega út. Tónmálið var nokkuð hefðbundið og minnti á margt sem maður hefur heyrt úr kvikmyndum. Vissulega eru til endalausar klisjur í kvikmyndatónlist, en tónlist Popoffs var ekki klisjukennd. Lagrænn hörpuleikur lá til grundvallar, en í kringum hann dönsuðu hendingar ólíkra slagverkshljóðfæra. Þessar mismunandi raddir samsvöruðu sér ágætlega. Ég var ekki eins sannfærður um ágæti tónverks eftir Völu Gestsdóttur, Restless. Ég vil taka það fram að ég heyrði frábært lag eftir hana á Myrkum músíkdögum. En það sem nú var flutt virkaði sundurlaust. Tölvuhljóð (eftir Úlf Hansson) hljómuðu auk þess eins og hreinn óþarfi. Vissulega átti tónlistin einmitt að fjalla um eirðarleysi og einbeitingarskort, líkt og titillinn gaf til kynna. En samt hefði þurft meiri undiröldu, sterkari þráð, eitthvað sem tengdi ólíka hluta betur saman. Það vantaði heildarsvipinn. Síðast á dagskránni var „aðal tónsmíðin“ eftir fyrrnefndan Pál Ragnar Pálsson: Kátínuvísindin – Hýperbólusetning og Parabólusetning við ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Þar steig fram á svið sópransöngkonan Tui Hirv og söng framandi laglínur. Hún gerði það fallega, röddin var þétt og ágætlega fókuseruð. Laglínurnar voru skemmtilegar, og ég dáðist að öllum litunum sem ólík slagverkshljóðfæri ásamt hörpunni framkölluðu. Þetta voru endalaus blæbrigði, allskonar skrýtin áferð, furðulegir hljómakokteilar. Mögnuð heild, það. Niðurstaða: Glæsilegur hljóðfæraleikur, verkin flest áhugaverð, en tónleikaskráin hroðvirknisleg.
Mest lesið Galopnar sig og segist ætla að breyta hlutunum Lífið Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Tónlist „Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ Lífið Skilin að borði og sæng eftir 28 ára hjónaband Lífið Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið „Rétturinn sem fjölskyldan þín mun elska og biðja um aftur og aftur“ Lífið Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Tónlist Útbjó lágkolvetna prógram fyrir systur sína sem léttist strax og fékk meiri orku Lífið Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Menning Fleiri fréttir Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Veisla fyrir augu og eyru Ekki er allt gull sem glóir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Sjá meira