Heilsukokkurinn Auður Ingibjörg Konráðsdóttir eldar aðeins grænmetisrétti. Hún er nýjungagjörn og er aldrei með það sama á jólunum.
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir hefur verið grænmetisæta í tuttugu ár og það gildir jafnt á jólum sem öðrum árstímum. „Ég er þó alltaf með eitthvað nýtt á aðfangadag og hef ekki skapað mér neinar sérstakar jólahefðir. Það kemur aðallega til af því að ég er svo forvitin og vil alltaf vera að prófa eitthvað nýtt."
Auður hefur gert tófústeik í ýmsum útfærslum og gerði til að mynda eggaldinsteik í fyrra sem kom vel út. Hún hefur þó að mestu látið hnetusteikina, sem margar grænmetisætur borða á jólunum, eiga sig. „Ég vann lengi á grænmetisstöðum og þar var yfirleitt verið að gera hnetusteik í margar vikur fyrir jól. Ég var því eiginlega alveg búin að fá nóg þegar aðfangadagur rann upp."
Í ár ætlar Ingibjörg að vera með Portobello-steik með ofnsteiktum sætum kartöflum. Uppskriftin er hennar eigin eins og flest annað sem hún gerir. Í eftirrétt verður hún með perufrauð með möndlukurli.
Auður hefur gefið út tvær bækur með heilsuréttum. Sú fyrsta kom út í fyrra og heitir Heilsudrykkir og hin síðari, Heilsusúpur og salöt, kom út fyrir skemmstu. Þar er meðal annars að finna uppskrift að graskerssúpu sem Auður býður stundum upp á í jólaforrétt.
En hefur hún einhver ráð til þeirra sem vilja halda í við sig í jólamánuðinum? „Mitt helsta ráð er að borða sem næst upprunanum. Ég held að það séu ekki einstakar matartegundir sem láta okkur líða illa heldur öll aukaefni sem eru sett út í.
- ve
Portobello-steik
2 portobello-sveppir
Handfylli af grænu salati að eigin vali
1 msk söxuð steinselja
1 msk söxuð basilíka
Marinering
4 döðlur
2 msk. tamarisósa
1 msk. balsamik
½ dl ólífuolía
1 msk. engiferrót
2 tsk. næringarger
½ tsk. sjávarsalt
¼ tsk. cayenne-pipar
Leggið döðlur í bleyti yfir nótt. Maukið allt í blandara.
Fylling
½ hvítur laukur
200 g kirsuberjatómatar
2 dl sólblómafræ
½ dl sesamolía
Leggið sólblómafræin í bleyti yfir nótt. Hreinsið sveppina. Skerið laukinn í hringi og tómatana í 4 parta. Látið renna af fræjunum og blandið þeim saman við marineringu ásamt laukhringjum og tómötum.
Dreypið helmingi af sesamolíu ofan á sveppina, veltið þeim við og dreypið restinni af olíunni á stilkhliðina. Leggið sveppina í eldfast mót þannig að stilkhliðin snúi upp. Skiptið fyllingunni jafnt á sveppina og bakið í ofni við 190°C í um það bil 25 mínútur. Leggið steikurnar á græna salatið og stráið steinselju og basilíku yfir.
Ofnsteiktar sætar kartöflur
1 sæt kartafla
½ dl lífræn sólblómaolía
1 grein rósmarín
4 greinar garðablóðberg
1 msk. sjávarsalt
Handfylli grænkál
Afhýðið kartöfluna og skerið í fallega kubba. Veltið upp úr olíu og salti og setjið í eldfast mót ásamt rósmarin og garðablóðbergi. Steikið í ofni við 190°C í um það bil 30 mínútur.
Perufrauð með möndlukurli
Frauð
4 döðlur
1/2 dl rúsínur
1 tsk. lucuma
1 tsk. maca
½ dl hlynsíróp
1 avókadó
1 pera
1 banani
5 dropar Stevia, English toffee
Leggið döðlur og rúsínur í bleyti yfir nótt. Sigtið vatnið frá og maukið allt í matvinnsluvél. Setjið í fallegar skálar, stráið streusel yfir og skreytið með gljáðri perusneið.
kurl
8 lífrænar möndlur
1 msk. pálmasykur
Látið möndlur liggja í bleyti yfir nótt. Saxið og blandið pálmasykri saman við.
Skraut
1 pera
2 msk hlynsíróp
Lýsing:Skerið peruna í örþunnar sneiðar eftir endilöngu. Dreifið hlynsírópi yfir, leggið á sílikonmottu og þurrkið í ofni yfir nótt við 50°C með skeið í hurðafalsinu til að hleypa rakanum út.
