Faðmaðu hvolp Stígur Helgason skrifar 21. desember 2012 06:00 Ef þú ert að lesa þessi orð þýðir það að heimurinn fórst ekki í nótt. Það er ágætt – margir eru langt komnir með jólaundirbúninginn og það er ekki heldur búið að afgreiða rammaáætlun á Alþingi. Það væri synd ef ragnarök spilltu því góða máli. Kannski trúðu ekki margir þessum heimsendaspám en við hljótum samt að geta notað tækifærið til að gleðjast yfir því að framhald verði á jarðvist okkar um sinn og jafnvel endurmetið okkur aðeins í leiðinni. Hver veit nema Barack Obama og samlandar hans fari á fætur í dag og ákveði að fyrst þessi heimur okkar er á annað borð enn til mætti kannski bæta hann örlítið með því að farga þó ekki væri nema öðru hverju vopni í landinu. Kannski Annþór og Börkur vakni í klefunum sínum á Litla-Hrauni, hittist í útivist og sammælist um að héðan í frá ætli þeir að vera góðir við annað fólk. Maður getur alltaf vonað. Og hvað getur þú gert til að bæta heiminn í dag? Hér er hugmynd: Hjólaðu upp að Esjurótum, gakktu upp á topp (eða allavega upp að steini) með Christmas Card from a Hooker in Minneapolis með Tom Waits á lúppu í eyrunum og king size Lion Bar í mittistöskunni, horfðu yfir jólalýsta borgina og hugsaðu: Ef menn hefðu nú lesið rétt í dagatal Mayanna og það hefði sannarlega liðið undir lok á nákvæmlega þessum degi, og ef – bara ef – þessir frumbyggjar Suður-Ameríku hefðu í raun verið gæddir óbrigðulli spádómsgáfu, nú þá væri þetta óreiðukennda en fallega hrúgald sem við köllum Reykjavík rústir einar – alelda, á kafi í sjó eða glóandi hrauni, orðið að dufti – eða einfaldlega gufað upp í eilífðina. En við sluppum með skrekkinn. Hjólaðu svo til baka, hlauptu smávegis útundan þér og gerðu eitthvað viðbjóðslega væmið og krúttlegt. Hringdu í strákinn eða stelpuna sem þú ert skotin(n) í og syngdu Waterfalls með TLC í símann (líka rappið), keyptu fallhlífarstökksnámskeið fyrir þig og mömmu þína, bakaðu smákökur og farðu svo niður að Tjörn og gefðu öndunum þær, færðu ömmu þinni bol með mynd af hipphopphljómsveit, segðu upp ef þér finnst óbærilegt í vinnunni og keyptu þér flug aðra leiðina til Súrínam, gefðu útigangsmanni sjónvarpið þitt (og rafstöð), teiknaðu hjartnæm skilaboð í héluna á framrúðuna á bíl nágrannans (makaðu einhverju á hana til að krota í ef það er ekki frost) og umfram allt: finndu þér hvolp og faðmaðu hann (að fengnu hans samþykki). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bakþankar Skoðanir Stígur Helgason Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun