Hugsar þú vel um veiðibúnaðinn? Trausti Hafliðason skrifar 30. mars 2013 00:01 Sérstaklega mikilvægt er að hreinsa stangir og hjól eftir ósaveiði því salt getur eyðilagt.
Veiðistangir, hjól og vöðlur kosta töluverðan pening, meðal annars þess vegna er nauðsynlegt að hugsa vel um veiðibúnaðinn. Það þarf í raun lítið annað en vatn og smá sápu til að halda veiðibúnaðnum í toppstandi.Hér eru nokkrar punktar sem vert er að hafa í huga:Veiðistöngin: Það þarf svo sem ekki mikið að hugsa um stöngina. Þó er ágæt regla að setja hana ekki blauta í stangarhólk og sérstaklega ekki vefja henni blautri í klút og setja í hólk. Ef það er gert þá er í það minnsta nauðsynlegt að taka hana úr hólknum þegar heim er komið og leyfa henni að þorna. Annars getur korkurinn skemmst og ef stöngin var í saltvatni getur hjólastæðið ryðgað.Hjól: Það á að skola hjól eftir notkun. Sérstaklega er þetta mikilvægt ef það hefur verið notað í saltvatni, til dæmis í ósaveiði við sjó. Sumir spóla allri línunni af hjólinu og hreinsa það vandlega með vatni. Ef sandur eða drulla hafa komist inn í hjólið er ágætt að taka spóluna af og hreinsa skítinn burt með bursta, til dæmis tannbursta.Lína: Ef línan hefur verið notuð í saltvatni, vatni þar sem mikið er um þörunga nú eða vatni þar sem sjúkdómar hafa herjað á fiska er nauðsynlegt að hreinsa línuna. Þá er best að spóla línunni af hjólinu og leggja hana í fat með hreinu vatni og smá sápu. Þegar línan hefur legið í sápuvatninu í nokkrar mínútur er henni spólað aftur á hjólið. Gott að vera með þurran klút og strjúka af línunni um leið og það er gert.Vöðlur: Það er óþarfi að þvo vöðlur. Það er hins vegar nauðsynlegt að hengja þær upp til þerris eftir hverja veiðiferð, annars geta þær myglað.Vöðluskór: Það á að hreinsa sólana á vöðluskóm eftir hverja veiðiferð, sérstaklega ef farið er úr einu vatni í annað eða einni á í aðra. Best er að hreinsa þá með heitu vatni og sápu.Flugur: Ekki geyma blautar flugur í lokuðu boxi. Sérstaklega á þetta við um flugur með stórum vængjum eða stélum. Litarefnin úr hnýtingarefninu getur smitast í aðrar flugur í boxinu. Eftir hvern veiðidag er ágætt að geyma boxið opið. Þá þorna flugurnar fljótt. Mikill raki í lokuðu boxi getur líka leitt til þess að krókar ryðgi.Heimild: The Orvis Guide to Beginning Fly Fishing trausti@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Er meiri veiði núna í Eystri Rangá en 2013 Veiði Langá hækkaði um 30 sm í nótt Veiði Margir stórir fiskar sagðir á ferli í Varmá Veiði Veiðin komin í gang á heiðunum Veiði Opin fyrirlestur um hreindýraveiðar Veiði Elliðaárnar: 31 lax á fyrsta degi Veiði Má skjóta bleikju með haglabyssu? Veiði Fiskur í Hlíðarvatni í miklu fæði og hunsar veiðimenn Veiði Myndskeið af risalaxinum í Laxá í Kjós Veiði 48 laxa holl í Kjarrá Veiði