Brúará gaf mest 140 laxa árið 1973 23. janúar 2013 04:00 Hún er falleg Brúará. Mynd/Björgólfur Hávarðsson
Brúará er mörgum veiðimanninum ráðgáta. Þetta mikla og fallega vatnsfall kallar til sín á hverju sumri þéttan hóp veiðimanna sem aðallega sækir þangað eftir hinni stóru Brúarárbleikju, sem er rómuð fyrir stærð og baráttugleði. Færri gera sér vonir um að setja í lax, en það er engu að síður gaman að líta til baka með það í huga að töluvert af laxi hefur oft veiðst í Brúará í gegnum árin. Í skýrslu Veiðimálastofnunar um veiði á vatnasvæði Hvítár/Ölfusár kemur fram að skipta má laxveiði undanfarinna áratuga í Brúará í fimm tímabil. „Á fyrsta tímabilinu eða á árunum 1970-1973 var vaxandi veiði og fór hún mest í 140 laxa árið 1973 sem er mesta laxveiði sem skráð er úr Brúará. Á árbilinu 1974-1980 minnkaði veiðin og árið 1980 veiddust einungis 20 laxar. Á tímabilinu 1981 til 1998 var ársveiðin flest ár rétt yfir 40 löxum. Á næsta tímabili var veiðin flest ár undir 40 löxum nema árið 2003. Frá og með árinu 2007 hefur veiðin verið yfir 40 löxum. Meðalveiði síðustu 10 ára var 40 laxar," segir í skýrslunni. svavar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Stórurriði sleit sig lausann við Elliðavatn í gærkvöldi Veiði 75 ára afmæli SVFR Veiði Húseyjakvísl gaf vel þrátt fyrir erfið skilyrði Veiði Ný vötn í Veiðikortinu Veiði Ellefu milljónir úr Veiðikortasjóði til rjúpnarannsókna Veiði Gengið með Langá og Haukadalsá Veiði Þúsund lítra olíutankur á botni Mývatns Veiði Nýr leigutaki Þverár og Kjarrár Veiði Lokatölur úr ánum og vangaveltur Veiði Kalt við vötnin næstu daga Veiði