Þótt Blanda hafi gefið frábæra veiði á síðustu árum - eins og segir á vef Laxár - olli síðasta sumar vonbrigðum, líkt og flest veiðisvæði í fyrra.
Lax-á býður nú dagana frá 20. júní og út þann mánuð á svæði II þriðjungs afslætti og á svæði III á tæplega fjórðungs afslætti. Stangardagurinn á svæði III er því á 8.250 krónur í stað 10.800 króna og dagurinn á svæði II á 10.000 krónur í stað 14.800 króna.
"Það vill oft gleymast að á svæðinum þar á milli, svæði II og III, er gríðarlega fallegt, langt og mikið veiðisvæði," segir á lax-a.is um þennan kafla Blöndu sem spannar um það bil 35 kílómetra. Um sjötíu merktir veiðistaðir eru á þessum svæðum.
Sem fyrr segir var veiðin í Blöndu í fyrra með slappara móti. Þetta átti sérstaklega við efri svæðin. Þannig höfðu veiðst aðeins sautján laxar samanlagt á svæðum II og II frá því veiðar hófust 20. júní og fram til 12. júlí er Veiðivísir flutti frétt af stöðu mála í Blöndu.
Alls enduðu miðsvæðin tvö síðan í 120 löxum áður en sumarveiðinni í fyrra lauk. Bæði svæðin voru hins vegar að sögn fremur illa stunduð þetta sumar.