Góður árangur í minnkun eyðslu 17. mars 2013 11:00 Honda bílar eru meðal þeirra eyðslugrennstu
Minnkaði um 16% milli áranna 2011 og 2012. Eldsneytiseyðsla bíla fer sílækkandi og svo virðist sem aldrei hafi verið tekin stærri skref í þá átt en í fyrra. Tölur frá Bandaríkjunum herma að edsneytiseyðsla nýrra bíla hafi minnkað um 16% milli ára, þ.e. frá 2011 til 2012. Ekki hefur svo mikill munur mælst milli ára frá því árið 1975. Þau bílamerki sem fremst fara í flokki þessarar lækkunar eru Honda, Volkswagen og Mazda. Hyundai og Kia voru undanskilin í útreikningum vegna þeirrar rannsóknar sem bílar þeirra gangast undir vegna ranglega uppgefinnar eyðslu. Þó má búast við að bílar þeirra hefðu náð hátt á lista þeirra sem minnkað hafa eyðslu mest. Næsti stóri hjallur sem bílaframleiðendur þurfa að mæta frá hendi yfirvalda verður árið 2016, en settar hafa verið fram kröfur um eyðslu bíla sem framleiddir verða þá sem mörgum bílaframleiðendum gæti reynst örðugt að ná. Þó eru 25% þeirra bíla sem framleiddir eru í dag búnir að ná þeim kröfum.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent