Hópbílar fá tvo nýja Irisbus Finnur Thorlacius skrifar 28. mars 2013 14:30 Önnur af nýju Irisbus rútunum sem keyptar voru frá BL.
Hópbílar keyptu 12 nýjar rútur í fyrra og eru með 55 rútu flota. Það er ekki á hverjum degi sem rútufyrirtækin íslensku kaupa nýjar rútur, en á dögunum fengu Hópbílar hf. afhentar tvær nýjar og glæsilegar 51 manna hópbifreiðar af gerðinni Irisbus Magelys PRO en þær rútur eru það nýjasta sem í boði er frá Irisbus og eru seldar hjá BL. Bílarnir bætast í nýlegan bílaflota Hópbíla. Hópbílar hafa á undaförnum árum endurnýjað bílaflotann með markvissum hætti í takt við aukningu ferðamanna og tilkomu nýrra verkefna. Hópbíla keyptu t.a.m. 12 nýja hópferðabíla af BL ehf. á síðastliðnu ári og eru nú með 55 bíla flota. Nýju bílarnir eru að sjálfsögðu hannaðir í takt við nútíma kröfur með stærri rúður og meira útsýni en áður hefur boðist í bílum af þessari gerð. Rúturnar eru búnar 450 hestafla 10 lítra dísilvél sem uppfyllir EURO-5 útblástursstaðal, ZF-Astronic rafskiptum gírkassa, skriðstillir og gírhemil. Öryggisbelti eru á öllum sætum, salerni og sjónvarp. Fullhlaðnar er hvor rúta um sig 19 tonn. Hópbílar hf. annast meðal annars akstur fyrir Strætó bs um Suðurland til Hornafjarðar, um Vesturland og Norðurland til Akureyrar ásamt því að sinna ferðaskrifstofum með erlenda ferðamenn, sem sífellt fjölgar á ferðum um landið.
Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent