Bílar

Örlög Seat ráðast á árinu

Finnur Thorlacius skrifar
Snotur Seat Bocanegra
Snotur Seat Bocanegra
Afkoma Seat skánaði á árinu en ef hagnaður næst ekki á árinu verður merkið lagt niður.

Það er ekki mikil þolinmæði á heimavelli Volkswagen samstæðunnar. Þar gengur flest í haginn og ef eitthvað gerir það ekki fer hnífurinn fljótt á loft. Það á sannarlega við um Seat, en örlög spænska bílamerkisins munu ráðast á þessu ári.

Seat er eina vörumerkið í Volkswagen samsteypunni sem ekki skilar hagnaði. Ef ekki tekst að snúa tapinu í hagnað á þessu ári verður Seat merkið lagt niður. Reksturinn gekk reyndar betur á síðastliðnu ári en oftast áður, en bara ekki nóg að mati stjórnar Volkswagen.

Afkoma Seat skánaði á síðasta ári og reksturinn var ekki langt frá því að vera í jafnvægi undir stjórn nýs forstjóra og 650 milljón evra fjárfestingar í framleiðslu, niðurskurði og hagræðingu í rekstri og markaðsátaki. Útlfutningur á Seat bílum jókst og salan jókst um 22 prósent á Þýskalandsmarkaði og um 16,6 prósent í Mexíkó svo dæmi séu nefnd.

Seat er nú seldur í 77 löndum alls. En þótt staðan hafi batnað á Þýskalandsmarkaði þá dróst bílasala Seat saman í Evrópu um 16 prósent. Þar munar mjög um bágt efnahagsástand á helstu mörkuðum Seat í S. Evrópu, þ.e. Spáni, Ítalíu og Grikklandi.






×