Bílar

Ferrari í kappakstri við þotu

Finnur Thorlacius skrifar
Airbus A320 gegn Ferrari F12 Berlinetta.

Flugfélagið Air Malta fékk þá hugmynd að etja saman einni af farþegavélum sínum gegn Ferrari F12 Berlinetta bíl í kappakstri til að safna fé til góðgerðarmála. Söfnunin tókst reyndar ágætlega því 29 milljónir króna höluðust inn. Lewis Hamilton formúluökumaður mætti á staðinn sem áhorfandi, ekki ökumaður Ferrari bílsins.

Það er auðvelt að gleyma því hversu öflug tæki þotur eru, en það á einnig við um Ferrari bíla. Hvort þotan eða Ferrari bíllinn stendur uppi sem sigurvegari má þó aðeins komast að með því að horfa á myndbrotið sem hér fylgir.






×